Um skýrsluskil vegna CFC félaga
Með CFC félagi er átt við félag, sjóð eða stofnun sem staðsett er á lágskattasvæði og er í eigu og/eða undir stjórn íslensks eiganda, hvort heldur sem sá eigandi er einstaklingur eða félag. Lista yfir lágskattasvæði má finna á vef fjármálaráðuneytisins.
Íslensk kennitala fyrir CFC félag
Sum CFC félög hafa fengið úthlutað kennitölu vegna bankaviðskipta á Íslandi. Eigi félag ekki íslenska kenntölu þarf að sækja um hana til fyrirtækjaskrár RSK á eyðublaði RSK 17.90, Umsókn um kennitölu fyrir CFC félag. Án íslenskrar kennitölu er ekki hægt að skila tilskildum gögnum til ríkisskattstjóra.
Skýrsla CFC félags
Eigandi CFC félags þarf að sjá til þess að skýrslu fyrir félagið sé árlega skilað til ríkisskattstjóra á eyðublaðinu RSK 4.24, Skýrsla lögaðila á lágskattasvæði. Séu íslenskir eigendur fleiri en einn koma þeir sér saman um hver annist skýrsluskil félagsins. Hægt er að sækja pdf-útgáfu á rsk.is, en þetta eyðublað er aðeins til á pappírsformi (ekki í rafrænum skilum). Skila ber ársreikningi félagsins með skýrslunni.
Skýrsla eigenda
Eigendur CFC félaga, bæði lögaðilar og einstaklingar, skulu skila eyðublaðinu RSK 4.25, Skýrsla eiganda með framtali sínu og gera þar grein fyrir eignarhlut sínum, atkvæðisrétti, arði og hlutdeild í tekjum og eignum. Þetta eyðublað er fylgiskjal með RSK 1.04, Skattframtal lögaðila. Bæði lögaðilar og einstaklingar geta skilað því rafrænt með framtali sínu.
Tengt efni:
Almennt um skattskyldu vegna CFC félaga.
