Forsendur í álagningu 2010
Vegna tekjuársins 2009
Skatthlutfall
Manna: 24,1% tekjuskattur og 13,1% útsvar (landsmeðaltal).
Barna (fædd 1994 og síðar): 6% af tekjum umfram 100.745 (4% tekjuskattur og 2% útsvar).
Lögaðila: 15% tekjuskattur á hlutafélög, en 23,5% á sameignarfélög, dánarbú og þrotabú.
Hátekjuskattur
Á tekjuskattsstofn umfram kr. 4.200.000 á tímabilinu júlí-desember 2009 er lagður 8% hátekjuskattur, til viðbótar almennum tekjuskatti.
Fjármagnstekjuskattur
Á fjármagnstekjur er lagður 10% skattur. Að auki leggst 5% skattur á fjármagnstekjur eftir 1. júlí 2009, sem eru umfram kr. 250.000 á mann. Þó þannig að 70% af leigutekjum eftir 1. júlí mynda skattstofn.
Hagnaður af sölu hlutabréfa getur verið skattfrjáls, allt að kr. 367.625 hjá einhleypingi og kr. 735.250 hjá hjónum/sambúðarfólki. Skilyrði er að um sé að ræða “sérstök hlutabréf” sem keypt voru í staðfestu félagi á árunum 1990-96.
Auðlegðarskattur
Á nettóeign einhleypings umfram 90 milljónir kr. og nettóeign hjóna umfram 120 milljónir kr. er lagður 1,25% auðlegðarskattur. Skatturinn er ekki lagður á félög.
Gjald í framkvæmdasjóð aldraðra
Gjaldið er kr. 8.400 og er lagt á alla þá sem fæddir eru 1940 eða síðar og hafa tekjuskattsstofn sem er hærri en kr. 1.361.468.
Útvarpsgjald
Gjaldið er kr. 17.200 á hvern mann. Undanþegnir gjaldinu eru menn með tekjuskattsstofn kr. 1.361.468 eða lægri, og þeir sem eru 70 ára og eldri í árslok 2009, svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
Ýmsar tölur
Persónuafsláttur: kr. 506.466, 100% af ónýttum afslætti millifæranlegur hjá hjónum og sambúðarfólki.
Sjómannaafsláttur: kr. 987 á dag.
Hámarksívilnun vegna framfærslu námsmanns/ungmennis: kr. 291.000.
Gjaldfærsla á eignasamstæðum: Hámark kr. 250.000.
Árleg afskrift bifreiðar (v/rekstrarkostnaðar): kr. 615.000.
Tryggingagjald (almennt):
5,34% á tímabilinu 1. jan. - 30. júní
7,0% frá 1. júlí til 31. des.
Tryggingagjald v/launa sjómanna á fiskiskipum:
5,99% á tímabilinu 1. jan. - 30. júnÍ
7,65% frá 1. júlí til 31. des.
Iðnaðarmálagjald: 0,08% af heildarveltu, lagt á allan iðnað.
Búnaðargjald: 1,2%
Jöfnunargjald alþjónustu: 0,10% af veltu af fjarskiptastarfsemi.
Þar sem talað er um sambúðarfólk er bæði átt við tvo einstaklinga í óvígðri sambúð og par í staðfestri samvist. Skattlagning samskattaðs sambúðarfólks fer eftir sömu reglum og gilda um hjón.
Barnabætur og vaxtabætur
Sjá dæmi um útreikning barnabóta eða útreikning vaxtabóta.

