Launamiði og launaframtal 2012
Hér er að finna ítarlegar leiðbeiningar um útfyllingu launamiða og launaframtals. Form launamiða 2012 vegna launagreiðslna á árinu 2011 er nánast óbreytt frá fyrri árum og er það fáanlegt hjá ríkisskattstjóra og á skattstofum.
Tölvutæk skil
Launamiðum er hægt að skila rafrænt beint úr tölvukerfum og í gegnum gagnaskilakerfi RSK, á þjónustusíðu launagreiðanda. Lýsingu má finna á hér.
Launamiði 2012
2 Vinnulaun
Til vinnulauna teljast allar tegundir launa eða þóknana, greidd eða ógreidd, sem launþegi fær fyrir starf sem hann innir af hendi á ábyrgð launagreiðanda. Til vinnulauna teljast ákvæðislaun, biðlaun, nefndarlaun, eftirlaun, launabætur, staðaruppbætur, orlofsfé og greiðslur fyrir ótekið orlof. Enn fremur verkfæragjald eða verkfærapeningar, fatapeningar, flutningspeningar eða greiðsla fargjalda milli heimilis og vinnustaðar, hvort sem framangreindar greiðslur eru reiknaðar sem hundraðshluti launa eða á annan hátt, landgöngufé, mistalningsfé, risnufé og endurskoðunarlaun kjörinna manna. Einnig skal hér færa fæðispeninga sem launþegi fékk greidda hjá vinnuveitanda sínum, þar með taldir fæðispeningar greiddir í orlofi eða veikindum og þegar skip er í heimahöfn. (Metin fæðishlunnindi skal færa í reit 33 og bifreiðahlunnindi í reit 60 sbr. skýringar við þá reiti. Styrki til líkamsræktar og heilsueflingar skal færa í reit 82, með viðeigandi texta, eða í reit 61 eftir atvikum.).
Í launamiðareit 210 skal færa þann hluta arðs sem talinn er sem laun, skv. 3. málsl. 1. mgr. 11. gr. laga nr. 90/2003.
Stjórnarlaun skal færa í launamiðareit 220.
63 Iðgjöld
Í þennan reit skal færa iðgjald launamanns sem varið var til aukningar lífeyrisréttinda, en frádráttur vegna þess getur að hámarki numið 4% af launum ársins. Gjaldið þarf að hafa verið greitt í lífeyrissjóð eða annan sjóð sem fellur undir 3. mgr. 8. gr. laga nr. 129/1997.
03, 08 Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð
Í 03 skal tilgreina lífeyrissjóðsiðgjald launþegans sjálfs, en í 08 númer sjóðsins samkvæmt lista yfir lífeyrissjóði.
05 Þar af greitt v/sjómennsku
Hér skal tilgreina laun vegna sjómennsku sem veita rétt til sjómannaafsláttar, sbr. 12. og 13. gr. reglugerðar nr. 10/1992 um sjómannaafslátt, og innifalin eru í launum í reit 02.
06 Heildargreiðslur til verktaka, með virðisaukaskatti
Verktaki telst sá einstaklingur eða lögaðili sem samkvæmt samningi, skriflegum eða munnlegum, tekur að sér að vinna ákveðið verk eða inna af hendi ákveðna þjónustu gegn endurgjaldi. Verktaki ber ábyrgð á verkinu og honum ber að standa skil á launatengdum gjöldum og öðrum kostnaði vegna starfsemi sinnar. Aðili sem hefur menn í þjónustu sinni og greiðir þeim laun (launagreiðandi) ber aftur á móti ábyrgð á vinnu þeirra. Gæta skal þess að færa í þennan reit ekki aðeins greidda fjárhæð á árinu heldur fulla útgjaldafjárhæð sem stofnað hefur verið til á árinu. (Það sem kann að vera ógreitt færist til skuldar á framtali greiðanda).
64 Númer sérsjóðs
Í þennan reit skal færa númer þess sjóðs sem viðbótariðgjald er greitt í. Á lista yfir lífeyrissjóði eru númer lífeyrissjóða.
19 Sjúkradagpeningar
Hér skal tilgreina greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga.
83 Ráðningartími sjómanna - dagafjöldi
Hér skal tilgreina dagafjölda ráðningartíma sjómanns. Við ráðningartíma er heimilt að bæta orlofs- og frídögum sem launþegi nýtti ekki á ráðningartíma en fékk greidda og uppgerða við lok ráðningar.
Ráðningardaga má tilgreina í einni tölu fyrir allt árið. Ef hugbúnaður gerir ráð fyrir öðru má skipta dagafjölda í tvennt og færa tölu fyrir fyrri hluta ársins í reit 83 og fyrir síðari hluta ársins í reit 85.
87 Lögskráningardagar
Hér skal skrá fjölda daga sem sjómaður er lögskráður á skip. Á þeim skipum sem ekki er skylt að lögskrá á er miðað við almenna vinnudaga á úthaldstímabili.
Hjá hlutaráðnum beitningarmönnum skal miða við þá daga sem þeir eru ráðnir við slík störf samkvæmt samningi um hlutaskipti.
Þeir dagar sem sjómaður getur ekki stundað vinnu vegna veikinda eða slysa, en tekur laun samkvæmt kjarasamningi, skulu einnig taldir hér.
Þessa daga má tilgreina í einni tölu fyrir allt árið. Ef hugbúnaður gerir ráð fyrir öðru má skipta dagafjölda í tvennt og færa tölu fyrir fyrri hluta ársins í reit 87 og fyrir síðari hluta ársins í reit 88.
16 Ökutækjastyrkur
Allar greiðslur til launþega fyrir afnot af ökutæki hans skal færa í þennan reit, hvort sem þær miðast við fastákveðna fjárhæð á ári, ekna kílómetra, endurgreiðslu rekstrarkostnaðar eða greiðsla er ákvörðuð á annan hátt.
73 Þar af undanþegið staðgreiðslu (ökutækjastyrkur)
Hér skal færa þá fjárhæð ökutækjastyrks sem fellur ekki undir staðgreiðslu skatta, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.
17 Dagpeningar
Hér skal tilgreina fjárhæð dagpeninga og annarra ferðapeninga greidda launþegum vegna ferða og námskeiða, svo og þjálfunar og eftirlitsstarfa á vegum vinnuveitanda.
Ferðapeninga sem launþegi hefur fengið endurgreidda hjá vinnuveitanda sínum skv. kostnaðarreikningum frá þriðja aðila skal ekki færa hér.
74 Þar af undanþegið staðgreiðslu (dagpeningar)
Hér skal færa þá fjárhæð dagpeninga sem fellur ekki undir staðgreiðslu skatta, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.
60 Bifreiðahlunnindi
Hér skal færa fjárhæð bifreiðahlunninda sem metin hafa verið til tekna skv. auglýstu skattmati ríkisskattstjóra.
21 Greiðslur úr lífeyrissjóði
Hér skal færa greiðslur úr lífeyrissjóði. Eftirlaun frá launagreiðanda skal hinsvegar færa í reit 02.
27 Fatahlunnindi
Fatnaður sem launþegi fékk án endurgjalds.
28 Húsnæðishlunnindi
Húsnæði sem launþegi fékk án endurgjalds.
Húsnæðishlunnindi er 5% af fasteignamati íbúðarhúsnæðis (þ.m.t. bílskúr) og lóðar, margfaldað með gildistölu þess svæðis þar sem húsnæðið er, sbr. liður 2.8 í skattmati 2011.
33 Fæðishlunnindi
Hér skal færa fjárhæð metinna fæðishlunninda samkvæmt auglýstu skattmati ríkisskattstjóra.
70, og 71 Sundurliðun á staðgreiðslu
Í reit 70 skal færa samtölu úr sundurliðun á staðgreiðslu ársins samkvæmt skilagreinum RSK 5.06, þ.e. greiðslur sem staðgreiðsla hefur verið greidd af. Í reit 71 skal færa afdregna staðgreiðslu samtals, samkvæmt skilagreinum RSK 5.06.
Ýmsar greiðslur og hlunnindi í krónum talið
Á launamiða (jafnt á pappírsmiða sem á tölvutæku formi í LS-færslu) skal tilgreina tegund greiðslu með viðeigandi tölu (kóda) og fjárhæð:
04) Hlutabréf á undirverði (mismunur á gangverði og afhendingarverði).
09) Styrkir til náms, rannsóknar- og vísindastarfa.
26) Skattfrjáls verðlaun, heiðurslaun og happdrættisvinningar.
32) Skattskyld verðlaun, heiðurslaun og happdrættisvinningar.
56) Endurgjald til höfunda eða rétthafa fyrir hvers konar hugverk, bókmenntir og listir eða listaverk, hvort sem um er að ræða greiðslu fyrir afnot eða kaup. Greiðslur fyrir einkaleyfi, framleiðslurétt, útgáfurétt og sérþekkingu.
57) Verkfallsstyrkur.
58) Björgunarlaun.
59) Skaðabætur og sambærilegt bótafé greitt af launagreiðanda (t.d. vegna sjúkdóma, slysa, atvinnutaps eða launamissis).
61) Styrkir og styrktarfé (úr hvers konar sjóðum opinberra stofnana, félagasamtaka, stéttarfélaga eða annarra aðila sem ekki falla undir kóda 09).
62) Félagsleg aðstoð (frá sveitarfélögum).
65) Leigutekjur.
67) Húsaleigubætur.
69) Skattskyldar greiðslur tryggingafélaga.
72) Aðrar bætur og styrkir frá sveitarfélögum (sem ekki falla undir kóda 09, 59, 61 og 62).
89) Óskattskyldar greiðslur tryggingafélaga.
210) Arður sem laun
220) Stjórnarlaun
Á launamiða (jafnt á pappírsmiða sem á tölvutæku formi í LA-færslu) skal alltaf tilgreina greiðslu með viðeigandi tveggja stafa tölu (kóda), ásamt frjálsum texta sem skýrir eðli greiðslunnar, og fjárhæð:
11) Endurgreiddur útlagður kostnaður.
34) Önnur hlunnindi.
82) Aðrar skattskyldar greiðslur.
93) Aðrar skattfrjálsar greiðslur.
Skattmat vegna ýmissa greiðslna og hlunninda er birt hér á rsk.is í janúar.
Launaframtal 2012
Ef framtalsskil einstaklinga í rekstri eru á pappír, getur þurft að skila launaframtali á pappír ásamt launamiðum. Hið sama gildir um óskattskylda lögaðila, sem ekki skila rafrænu skattframtali RSK 1.06. Skilafrestur er til 30. jan. 2012 sé launamiðum skilað á pappír, en til 10. febrúar sé launamiðum skilað á tölvutæku formi.
Launaframtali á pappír er skilað á næstu skattstofu eða til ríkisskattstjóra.
Skattskyldir lögaðilar skila launaframtali sem hluta af skattframtali RSK 1.04.
Lögaðilar, sem undanþegnir eru skattskyldu skv. I. kafla laga nr. 90/2003, skulu skila launframtali með rafrænum hætti á skattframtali RSK 1.06, hafi þeir greitt laun eða innt af hendi greiðslur sem mynda stofn til tryggingagjalds á árinu 2011.
Einstaklingar sem skila rafrænu skattframtali skila launaframtali sem hluta af samræmingarblaði RSK 4.05.
Hverjir skila launaframtali á pappír?
Einstaklingar með rekstur, sem greiða öðrum laun eða inna af hendi greiðslur sem mynda stofn til tryggingagjalds og sem skila skattframtali sínu á pappír, þurfa jafnframt að skila launaframtali á pappír. Launaframtalinu er skilað á næstu skattstofu eða til ríkisskattstjóra.
Þeir sem inna af hendi verktakagreiðslur eiga að skila launamiðum vegna þeirra. Á launaframtali skal koma fram fjöldi verktakamiða og heildarfjárhæð, þó þessar greiðslur myndi ekki stofn til tryggingagjalds.
Maður sem reiknar sér endurgjald við eigin atvinnurekstur, en greiðir ekki öðrum laun, þarf ekki að skila launaframtali. Nánari skýringar eru á bakhlið launaframtalsins.
Þeir rekstraraðilar sem skila skattframtali sínu með rafrænum hætti eiga ekki að skila launaframtali RSK 1.05 á pappír.
Stofn til tryggingagjalds
Gjaldstofn tryggingagjalds er allar tegundir launa og þóknana, hverju nafni sem nefnast, óháð formi launagreiðslu. Hér er t.d. um að ræða laun í reit 02 á launamiða, bifreiðahlunnindi, fæðishlunnindi, alla ökutækjastyrki, almennt mótframlag í lífeyrissjóð og staðgreiðsluskylda dagpeninga.
NB. Sá hluti arðs sem telja skal sem laun myndar þó ekki stofn til tryggingagjalds.
Greiðslur eftirlauna og lífeyris úr samþykktum lífeyrissjóðum og frá Tryggingastofnun ríkisins mynda ekki stofn til tryggingagjalds.
Stofn til tryggingagjalds í staðgreiðslu skal sundurliða niður á mánuði.
Heildarfjöldi launamiða
Hér skal tilgreina heildarfjölda launamiða sem skilað er, bæði vegna launa og verktakagreiðslna.
Fjöldi verktakamiða
Hér skal færa fjölda þeirra miða sem skilað er fyrir verktakagreiðslur.
Heildargreiðslur til verktaka
Hér skal tilgreina heildarfjárhæð verktakagreiðslna (06).
Laun vegna fiskveiða
Hér skal færa laun sem greidd eru sjómönnum vegna fiskveiða. Þau mynda stofn til tryggingagjalds auk þess sem greiða ber 0,65% iðgjald vegna slysatryggingar sjómanna hjá Tryggingastofnun ríkisins. Hafi útgerðarmaður sagt upp þeirri tryggingu sér ríkisskattstjóri til þess að iðgjaldið bætist ekki við.
Launagreiðslur til erlendra starfsmanna
Tilgreina skal sérstaklega launagreiðslur til erlendra starfsmanna sem ekki eru tryggðir hér á landi samkvæmt ákvæðum reglugerðar EBE nr. 1408/71/EBE, um beitingu almannatryggingareglna gagnvart launþegum sem flytjast á milli aðildarríkja.
Launagreiðandi skal hafa í vörslu sinni E-101 vottorð vegna hlutaðeigandi starfsmanna.
Þessar greiðslur skal sundurliða niður á mánuði, en þær eru ekki innifaldar í stofni til almenns tryggingagjalds.
Stofn til tryggingagjalds utan staðgreiðslu
Í þessa reiti færast laun undanþegin staðgreiðslu og reiknað endurgjald barna. Reiknað endurgjald manns og maka hans við eigin atvinnurekstur kemur hins vegar ekki fram á launaframtali.
Hér skal ennfremur tilgreina tegund og fjárhæð hlunninda utan staðgreiðslu opinberra gjalda sem metin eru til tekna samkvæmt skattmati ríkisskattstjóra og mynda stofn til tryggingagjalds.
Undirskrift
Mikilvægt er að undirrita launaframtalið áður en því er skilað. Launaframtal sem ekki er undirritað telst ófullnægjandi.

