Skattfrádráttur vegna nýsköpunar
OPINBER STUÐNINGUR VIÐ NÝSKÖPUNARVERKEFNI
Styrkhæfur kostnaður
Styrkhæfur kostnaður, til útreiknings á skattfrádrætti, getur numið allt að 100 milljónum króna vegna rekstrarkostnaðar* og allt að 150 milljónum króna vegna rannskónar eða þróunarvinnu sem keypt er af ótengdum aðila. Gera á grein fyrir útlögðum kostnaði og fengnum styrkjum á Greinargerð um skattfrádrátt, RSK 4.21.
Reiknaður skattfrádráttur
Skattfrádráttur nemur 20% af styrkhæfum kostnaði og getur því að hámarki orðið 20 milljónir króna vegna rekstrarkostnaðar eða 30 milljónir króna ef um aðkeypta vinnu er að ræða. Sé skattfrádráttur hærri en álagður tekjuskattur er mismunurinn greiddur út.
Hvað er opinber stuðningur?
Með opinberum stuðningi er átt við skattfrádrátt og styrki frá opinberum aðilum, samanlagt. Skattfrádráttur er ákvarðaður samkvæmt lögum 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
Styrkur frá opinberum aðilum
Njóti verkefni styrkja frá opinberum aðilum hámarkast opinber stuðningur við ákveðið hlutfall af styrkhæfum kostnaði, sbr. töflu yfir hámarksstuðning. Umtalsverðir opinberir fjárstyrkir geta því leitt til lækkunar á skattfrádrætti.
Dæmi: Skattfrádráttur og styrkir frá opinberum aðilum geta samanlagt orðið að hámarki 45% af styrkhæfum kostnaði við þróunarverkefni hjá litlu fyrirtæki (sjá töflu).
Einkaverkefni – aukið styrkhæfi
Ef nýsköpunarfélag stendur fyrir rannsóknarverkefni þar sem niðurstöður verða birtar með almennum hætti og dreift ókeypis, veitir það verkefninu aukið styrkhæfi.
| Styrkhæfi - hámark opinbers stuðnings | ||||
|---|---|---|---|---|
| Rannsóknarverkefni | Þróunarverkefni | |||
| Stærð fyrirtækis | Almennt | Aukið | Almennt | Aukið |
| Lítið | 70% | 80% | 45% | 60% |
| Meðalstórt | 60% | 75% | 35% | 50% |
| Stórt | 50% | 65% | 25% | 40% |
Samstarfsverkefni
Til að nýsköpunarverkefni geti talist samstarfsverkefni þarf það að vera í eigu tveggja eða fleiri óskyldra aðila. Reglur um styrkhæfan kostnað gilda fyrir verkefnið í heild en skattfrádrætti er skipt milli fyrirtækjanna sem taka þátt í því. Skrá yfir alla eigendur verkefnis skal fylgja skattframtali á eyðublaðinu RSK 4.22, Nýsköpun – samstarfsverkefni.
Samstarfsverkefni – aukið styrkhæfi
Samstarfsverkefni nýtur aukins styrkhæfis ef eitthvert eftirtalinna skilyrða er uppfyllt:
- Að verkefnið feli í sér samvinnu í það minnsta eins lítils eða eins stórs fyrirtækis, eða samstarf yfir landamæri við félag í öðru EES landi og að ekkert fyrirtæki fari með meira en 70% af styrkhæfum kostnaði.
- Að verkefnið feli í sér samstarf við rannsóknarstofnun sem fer með a.m.k. 10% hlut og hefur rétt til að birta niðurstöður verkefnisins.
- Að um sé að ræða rannsóknarverkefni þar sem niðurstöður verða birtar með almennum hætti og dreift ókeypis.
- Að umsækjandi sé stórt fyrirtæki sem vinnur verkefni í samvinnu við að minnsta kosti eitt lítið eða eitt stórt fyrirtæki, eða að verkefnið sé samstarf yfir landamæri við félag í öðru EES landi.
Sjá nánar um styrkhæfi í 15. grein laga nr. 152/2009 um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki.
* Hvaða rekstrarkostnaður er styrkhæfur?
- Starfsmannakostnaður (vísindamenn, tæknimenn og annað aðstoðarfólk sem vinnur að rannsóknarverkefninu).
- Kostnaður við tæki og búnað að því marki og í þann tíma sem þau eru notuð við rannsóknarverkefnið. Ef fyrrgreind tæki og búnaður eru ekki notuð allan endingartíma sinn við rannsóknarverkefnið telst aðeins afskrifaður kostnaður, sem samsvarar þeim tíma sem rannsóknarverkefnið varir og er reiknaður á grundvelli góðra reikningsskilavenja.
- Kostnaður tengdur byggingum og landi, að því marki og í þann tíma sem þau eru notuð við rannsóknarverkefnið, telst, að því er varðar byggingar, aðeins afskrifaður kostnaður sem samsvarar þeim tíma sem rannsóknarverkefnið varir og er reiknaður á grundvelli góðra reikningsskilavenja. Að því er varðar land er útlagður kostnaður við afsal eða fjármagnskostnaður, sem stofnað er til í reynd.
- Kostnaður í tengslum við samningsbundnar rannsóknir, tækniþekkingu og einkaleyfi, sem keypt eru, eða leyfi sem eru fengin frá utanaðkomandi aðilum á markaðsverði í viðskiptum ótengdra aðila og ekkert samráð á sér stað, sem og kostnaður vegna ráðgjafar og sambærilegrar þjónustu sem er eingöngu nýtt í tengslum við rannsóknarstarfsemina.
- Annar kostnaður sem stofnað er til beint vegna rannsóknarverkefnisins.
- Annar rekstrarkostnaður, þ.m.t. efniskostnaður, kostnaður við birgðir og þess háttar sem stofnað er til í beinum tengslum við rannsóknarstarfsemina.
