Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Áfengisgjald
Veftré   A- A+

Áfengisgjald

Almennt

Áfengisgjald er greitt af neysluhæfu áfengi sem í er meira en 2.25% af vínanda að rúmmáli.

Gjaldskyldir

Allir sem flytja inn eða framleiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu ber að greiða áfengisgjald. Einnig þeir sem flytja áfengi með sér eða fá það sent erlendis frá, til eigin nota.

Eftirlit

Eftirlit með starfsemi framleiðenda innanlands er í höndum ríkisskattstjóra sem jafnframt annast álagningu áfengisgjalds á innlenda framleiðslu. Ríkisskattstjóra ber jafnframt að halda skrá yfir alla þá aðila sem fengið hafa heimild til innflutnings og heildsölu áfengis hér á landi en um slíkar heimildir er sótt um hjá ríkislögreglustjóra sem gefur leyfin út.

Undanþágur

Eftirfarandi undanþágur eru frá greiðslu áfengisgjalds:

  1. Við sölu áfengis úr landi.
  2. Við innflutning/sölu til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
  3. Við innflutning/sölu í tollfrjálsar forðageymslur.
  4. Innflutningur og sala til þeirra sem njóta skattfrelsis hér á landi.
  5. Innflutningur ferðamanna og farmanna við komu frá útlöndum að tilteknu hámarki.
  6. Innflutningur og sala til lækna og lyfsala vegna áfengis sem talið er upp í lyfjaskrá og selt sem lyf.
  7. Innflutningur og sala til framleiðenda sem hafa leyfi til framleiðslu áfengis.
  8. Innflutningur og sala á neysluhæfum vínanda til framleiðslu á óneysluhæfum vínanda til iðnþarfa, rannsókna o.þ.h.

Áfengisgjaldsskírteini

Ríkisskattstjóri gefur út áfengisgjaldsskírteini að undangenginni umsókn, til eftirtaldra aðila sem undanþegnir eru greiðslu áfengisgjalds:

  1. Framleiðendur áfengis.
  2. Framleiðendur óneysluhæfs vínanda til iðnþarfa, rannsókna o.þ.h.
  3. Aðilar sem nýta neysluhæfan vínanda til iðnþarfa, rannsókna o.þ.h.

Lög og reglugerðir

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook