Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Skattar vegna fjármálaþjónustu
Veftré   A- A+

Skattar vegna fjármálaþjónustu

Fjársýsluskattur

Fjármálafyrirtæki, verðbréfafyrirtæki og tryggingafélög, auk Íbúðalánasjóðs, bera fjársýsluskatt. Skatturinn er 5,45% og stofninn eru allar tegundir launa og þóknana. Skattinum skal skila mánaðarlega í staðgreiðslu.
Nánar um fjársýsluskatt

Sérstakur fjársýsluskattur

Þessi skattur er 6% viðbótar tekjuskattur á tekjuskattsstofn umfram 1.000 milljónir króna og er lagður á sömu aðila og bera fjársýsluskatt. Standa skal skil á mánaðarlegum fyrirframgreiðslum á tekjuárinu.

Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki

Skylda til að greiða sérstakan skatt hvílir á fjármálafyrirtækjum sem hafa fengið starfsleyfi sem viðskiptabanki, sparisjóður eða lánafyrirtæki og á öðrum þeim sem fengið hafa leyfi til að taka við innlánum.
Skatturinn er 0,041% og stofninn eru heildarskuldir samkvæmt skattframtali.
Sjá lög nr. 155/2010

Viðbót við sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki

Við álagningu opinberra gjalda 2012 og 2013 skal til viðbótar við sérstakan skatt á fjármálafyrirtæki leggja á 0,0875% skatt. skattstofninn er sá sami. Gjalddagi er 1. nóvember á gjaldári og fyrirframgreiðsla 1. nóvember á tekjuári.

Sérstakt gjald á lífeyrissjóði

Við álagningu opinberra gjalda 2012 og 2013 skal 0,0814% gjald lagt á lífeyrissjóði. Gjaldstofninn er hrein eign til greiðslu lífeyris. Gjalddagi er 1. nóvember. (Lífeyrissjóðir bera ekki fjársýsluskatta.)
Fyrirframgreiðsla vegna 2012 er 31. desember 2011 og fyrirframgreiðsla vegna 2013 er 1. nóvember 2012.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook