Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Fyrirframgreiðsla þinggjalda
Veftré   A- A+

Fyrirframgreiðsla þinggjalda

Þar til álagning hvers árs liggur fyrir, skal hver lögaðili greiða fyrirfram upp í þau gjöld ársins sem eru fyrirframgreiðsluskyld. Greiða skal þá mánaðargreiðslu sem að ofan greinir á lögbundnum gjalddögum skatta, allt þar til álagning hefur farið fram, þó ekki í janúar og október. Eindagi er 15 dögum eftir gjalddaga.

Dráttarvextir eru reiknaðir af því sem gjaldfallið er, ef ekki hefur verið greitt innan mánaðar frá gjalddaga.

Ógreiddir dráttarvextir teljast með eftirstöðvum viðkomandi ára. Innborgun til greiðslu gjalda gengur fyrst til lækkunar á elstu skuld. Heimilt er að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda sem aðila er gert að greiða fram að álagningu 2012. Ríkisskattstjóri úrskurðar um lækkun greiðsluskyldunnar.

Ríkisskattstjóri veitir upplýsingar um greiðsluskyldu fram að álagningu 2012.

Sýslumenn og Tollstjóri veita upplýsingar um greiðslustöðu, útborgun inneigna og innheimtu skulda.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook