Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Iðnaðarmálagjald
Veftré   A- A+

Iðnaðarmálagjald

Almennt

Iðnaðarmálagjald er gjald sem lagt var á allan iðnað í landinu. Gjaldið var lagt á í síðasta skipti við álagningu árið 2010.

Undanþegin gjaldinu eru þó fyrirtæki sem eru að öllu leyti í eigu opinberra aðila, svo og fyrirtæki sem stofnuð eru samkvæmt sérstökum lögum til að vera eign opinberra aðila að verulegu leyti nema annars sé getið í þeim lögum.

Til iðnaðar teljast þær atvinnugreinar, samkvæmt Íslenskri atvinnugreinaflokkun (ÍSAT 95, frá 1. janúar 2008 tók gildi ÍSAT 2008), sem taldar eru upp í viðauka við lög nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald.

Gjaldstofn

Gjaldstofn iðnaðarmálagjalds er virðisaukaskattsskyld velta, svo og velta sem er undanþegin virðisaukaskatti (t.d. sala úr landi). Um virðisaukaskattsskylda veltu og veltu sem er undanþegin virðisaukaskatti er fjallað í 11.-12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.

Gjaldstig

Gjaldstig iðnaðarmálagjalds er 0,08%.

Uppgjör

Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda, en skila á framtali vegna iðnaðarmálagjalds með skattframtali viðkomandi árs. Þeir sem skila rekstrarframtali, RSK 1.04, eða rekstrarskýrslu, RSK 4.11, þurfa þó ekki að skila framtali vegna iðnaðarmálagjalds, enda er iðnaðarmálagjaldsframtal þá innbyggt í skattframtölin.

Lög

Lög nr.134/1993, um iðnaðarmálagjald

Eyðublöð

RSK 1.08 Framtal vegna markaðsgjalds og iðnaðarmálagjalds.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook