Jöfnunargjald alþjónustu
Almennt
Jöfnunargjald er lagt á fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja fjarskiptanet eða þjónustu.
Gjaldið rennur í jöfnunarsjóð í vörslu Póst- og fjarskiptastofnunar. Jöfnunargjaldið skal nota til að standa straum af fjárframlögum samkvæmt VI. kafla laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
Gjaldstofn
Gjaldstofn jöfnunargjalds er bókfærð velta, þ.e. rekstrartekjur sem fyrirtæki hefur af umræddri starfsemi hér á landi, sbr. 22. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti.
Gjaldstig
Gjaldstig jöfnunargjalds er 0,10% frá og með tekjuárinu 2009.
Uppgjör
Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda, en skila á framtali vegna jöfnunargjalds alþjónustu með skattframtali viðkomandi árs.
Frádráttarbærni
Jöfnunargjald má draga frá tekjum greiðanda á því rekstrarári þegar stofn þess myndaðist.
Lög
Lög nr. 81/2003 um fjarskipti.
Eyðublöð
RSK 1.11 Framtal vegna jöfnunargjalds alþjónustu.

