Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Skilagjald
Veftré   A- A+

Skilagjald

Almennt um skilagjald

Með lögum nr. 162/2002, um úrvinnslugjald, með síðari breytingum, er skilagjald lagt á drykkjarvörur í einnota umbúðum úr áli, stáli, gleri og plastefni. Gjaldið er bæði lagt á innfluttar drykkjarvörur við tollafgreiðslu og drykkjarvörur sem framleiddar eru eða átappaðar hér á landi. Skilagjald leggst ekki á drykkjarvörur í einnota umbúðum sem seldar eru úr landi. Skilagjald er kr. 11,21 (án vsk). Umsýsluþóknun er lögð á til viðbótar skilagjaldi og virðisaukaskattur reiknast af skilagjaldi og umsýsluþóknun. Fjárhæð umsýsluþóknunar er misjöfn eftir tegundum umbúða (sjá orðsendingar um skilagjald).

Gjaldskylda

Gjaldskylda skilagjalds nær til allra drykkjarvara í einnota umbúðum, sem fluttar eru til landsins eða framleiddar og átappaðar hérlendis og eru til sölu hér á landi og flokkast undir vöruliði 2009, 2201, 2202, 2203, 2204, 2205, 2206 og 2208 í tollskrá, sem er viðauki I við tollalög nr. 88/2005.

Álagning skilagjalds og gjaldskyldir aðilar

Þeim, sem flytja inn til landsins skilagjaldsskyldar vörur til eigin nota eða endursölu, ber skylda til að greiða skilagjald og umsýsluþóknun við tollafgreiðslu. Virðisaukaskattur er lagður á umrædda liði við innflutning en ekki önnur aðflutningsgjöld.

Framleiðendum og þeim sem tappa á skilagjaldsskyldar vörur innanlands ber að greiða skilagjald og umsýsluþóknun af framleiðslu sinni og standa skil á því í ríkissjóð. Gjöldin mynda ekki gjaldstofn við álagningu vörugjalds eða sambærilegra framleiðslugjalda en mynda hins vegar stofn til virðisaukaskatts.

Uppgjörstímabil og gjalddagar

Uppgjörstímabil vegna skilagjaldsskyldrar innlendrar framleiðslu eða átöppunar eru tveir mánuðir: janúar og febrúar; mars og apríl; maí og júní; júlí og ágúst; september og október; nóvember og desember.

Gjalddagi skilagjalds og umsýsluþóknunar er 28. dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Skilagjaldi og umsýsluþóknun af innlendri framleiðslu, ásamt skilagjaldsskýrslu (RSK 10.48), skal skila eigi síðar en á gjalddaga og skulu framleiðendur senda Endurvinnslunni hf. afrit af innlagðri framtalsskýrslu. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag, færist gjalddagi á næsta virkan dag þar á eftir.

Sé um vanskil að ræða reiknast álag og dráttarvextir. Álag er 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%.

Endurvinnslan hf.

Ríkissjóður skal ráðstafa innheimtu skilagjaldi, umsýsluþóknun og virðisaukaskatti til Endurvinnslunnar hf. Endurvinnslan hf. skal sjá um að endurgreiða neytendum skilagjald og virðisaukaskatt af því við móttöku á notuðum skilagjaldsskyldum umbúðum. Endurgreiðslan nemur kr. 12 á hverja umbúðaeiningu.

Endurvinnslan hf. skal sjá um að koma upp og viðhalda skilvirku fyrirkomulagi á söfnun skilagjaldsskyldra umbúða um land allt. Félagið skal sjá um að endurvinna umbúðir eða koma þeim til endurvinnslu eða eyðingar.

Endurvinnslan hf. skal gefa umhverfisráðuneytinu reglulega skýrslu um starfrækslu skilakerfisins og þar með talið fjölda skilaðra umbúða eftir tegundum.

Lög og reglugerðir

Eyðublað

  • Skilagjald og umsýsluþóknun eru talin fram á eyðublaðinu RSK 10.48, skilagjaldsskýrsla.

Orðsendingar

  • Orðsendingar vegna skilagjalds (RSK 16.04)

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook