Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Tekjuskattur
Veftré   A- A+

Tekjuskattur félaga

Félög sem eru skattskyld samkvæmt 2. grein laga nr. 90/2003 ,um tekjuskatt, bera tekjuskatt við álagningu á árinu 2012, vegna tekna á rekstrarárinu 2011, sem hér segir:

Hlutafélög, samlagshlutafélög, einkahlutafélög og samvinnufélög20%
Sameignar- og samlagafélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar, dánarbú, þrotabú og aðrir ótaldir lögaðilar36%
Óskattskyldir aðilar bera fjármagnstekjuskatt vegna tiltekinna tekna20%


Um skattskyldar tekjur félaga er fjallað í B-lið 7. greinar laga nr. 90/2003 ,um tekjuskatt, og um frádrátt frá skattskyldum tekjum er fjallað í 31. grein sömu laga. Um fjármagnstekjur er fjallað í C-lið 7. greinar laganna.

Nánari upplýsingar um framtalsskil og bæklingar um álögð opinber gjöld lögaðila.


Tekjuskattur félaga á rekstrarárinu 2010 (álagning 2011) var sem hér segir:

Hlutafélög, samlagshlutafélög, einkahlutafélög og samvinnufélög18%
Sameignar- og samlagafélög sem eru sjálfstæðir skattaðilar, dánarbú, þrotabú og aðrir ótaldir
lögaðilar
32,7%
Óskattskyldir aðilar bera fjármagnstekjuskatt vegna tiltekinna tekna18%

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook