Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Úrvinnslugjald
Veftré   A- A+

Úrvinnslugjald

Almennt um úrvinnslugjald

Þann 1. janúar 2003 tóku gildi lög nr. 162/2002, um úrvinnslugjald. Á grundvelli þeirra laga hefur verið sett reglugerð nr. 1124/2005, um úrvinnslugjald. Markmið laganna er að skapa hagræn skilyrði fyrir endurnotkun og endurnýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar og tryggja viðeigandi förgun spilliefna. Til að ná þessu markmiði er lagt úrvinnslugjald á ákveðnar vörur við innflutning og við sölu innlendrar framleiðslu auk þess sem skráður eigandi gjaldskylds ökutækis skal greiða úrvinnslugjald tvisvar á ári sem innheimtist með bifreiðagjaldi.

Gjaldskyldar vörur og gildistaka laganna

Gjaldskylda samkvæmt lögunum kemur til framkvæmda í áföngum.

a) Ýmsir vöruflokkar
Frá og með 1. janúar 2003 hófst skylda til greiðslu úrvinnslugjalds vegna eftirfarandi vöruflokka eins og nánar er kveðið á um í viðaukum með lögunum:

  1. Aðrar umbúðir: heyrúlluplast, sbr. viðauka I, einnota drykkjarvöruumbúðir með skilagjaldi úr áli, stáli, gleri og plastefnum, sbr. viðauka III.
  2. Olíuvörur: sbr. viðauka IV með lögunum. Þó er svartolía undanþegin gjaldtöku enda hafi Úrvinnslusjóður staðfest samning þar að lútandi, sbr. ákvæði 3. mgr. 8. gr. laganna og 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar.
  3. Lífræn leysiefni og klórbundin efnasambönd: lífræn leysiefni, sbr. viðauka V, halógeneruð efnasambönd, sbr. viðauka VI, ísócýanöt og pólyúretön, sbr. viðauka VII.
  4. Málning og litarefni: málning, sbr. viðauka VIII, prentlitir, sbr. viðauka IX.
  5. Rafhlöður og rafgeymar: rafhlöður og rafgeymar aðrir en blýsýrurafgeymar, sbr. viðauka X, blýsýrurafgeymar, sbr. viðauka XI.
  6. Vörur í ljósmyndaiðnaði: sbr. viðauka XII.
  7. Kvikasilfursvörur: sbr. viðauka XIII.
  8. Varnarefni: sbr. viðauka XIV.
  9. Kælimiðlar: sbr. viðauka XV.
  10. Hjólbarðar: sbr. viðauka XVI.
  11. Veiðarfæri úr gerfiefnum. sbr. viðauka XVII.

b) Drykkjarvöruumbúðir
Drykkjarvöruumbúðum er skipt upp í 2 flokka samkvæmt lögunum og reglugerðinni. Annars vegar er um að ræða samsettar pappaumbúðir, sbr. viðauka II, og hins vegar umbúðir úr áli, stáli, gleri og plastefnum, sbr. viðauka III. Gjaldskylda vegna samsettra pappaumbúða hófst 1. janúar 2003. Neytendur fá endurgreiddan skilagjaldshluta úrvinnslugjalds (nú 14 kr. með virðisaukaskatti) við móttöku á notuðum umbúðum.

Varðandi þá vöruflokka sem upp eru taldir í stafliðum a) og b) hér að framan, þá eru veigamiklar takmarkanir gerðar á gjaldskyldu vegna framleiðslu innanlands, sbr. nánar síðar.

c) Heyrúlluplast
Úrvinnslugjald skal lagt á heyrúlluplast frá og með 1. janúar 2004.

d) Ökutæki
Skráður eigandi gjaldskylds ökutækis skal á hverju gjaldtímabili greiða úrvinnslugjald að fjárhæð 350 kr. fyrir hvert gjaldskylt ökutæki sitt. Með gjaldskyldu ökutæki er átt við sömu ökutæki og greiða þarf bifreiðagjald af; sjá nánar skilgreiningu í 2. mgr. 1. gr. laga nr. 39/1988, um bifreiðagjald. Bifreiðar sem eru undanþegnar bifreiðagjaldi samkvæmt 4. gr. laga nr. 39/1988, eru gjaldskyldar og úrvinnslugjald er lagt á ökutæki með skráningarnúmer í innlögn, á ökutæki í eigu bótaþega og björgunarsveita. Álagning úrvinnslugjalds á þessar bifreiðir fer fram einu sinni á ári með gjalddaga 1. júlí. Gjaldskylda fellur niður frá og með upphafi fyrsta gjaldtímabils eftir að greitt hefur verið úrvinnslugjald af ökutækinu í full 15 ár og fyrir bifreiðir sem eru eldri en 25 ára í upphafi gjaldárs. Hver sá, sem afhendir gjaldskylt ökutæki til móttökustöðvar til endurnýtingar eða endanlegrar förgunar, skal fá greiddar 15.000 kr. í skilagjald enda hafi ökutækið verið afskráð og úrvinnslugjald greitt a.m.k. einu sinni af viðkomandi ökutæki.

Gjaldstofn

Gjaldstofn úrvinnslugjalds skal miðast við stykkjatölu eða þyngd í kílógrömmum hinnar gjaldskyldu vöru ásamt smásöluumbúðum. Ef gjaldskyld vara er hluti af annarri vöru miðast gjaldstofn við heildarþyngd gjaldskyldu vörunnar. Ef um er að ræða umbúðir með gjaldskyldri vöru, sem eingöngu eru notaðar til flutnings hennar og ekki eru smásöluumbúðir, skal þyngd þeirra ekki reiknuð með við ákvörðun gjaldstofns.

Gjaldskyldir aðilar, uppgjörstímabil, gjalddagar og tilkynningarskylda.

Gjaldskyldir aðilar eru eftirfarandi:

  1. Allir sem flytja til landsins gjaldskyldar vörur til endursölu.
    Hvert uppgjörstímabil vegna innfluttrar vöru er tveir mánuðir; janúar og febrúar, mars og apríl, o.s.frv. Gjalddagi hvers uppgjörstímabils er 28. dagur annars mánaðar eftir lok þess.
    Framangreindir aðilar skulu eigi síðar en á gjalddaga ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs úrvinnslugjald af gjaldskyldum vörum sem voru tollafgreiddar á uppgjörstímabilinu.
  2. Allir sem flytja til landsins gjaldskyldar vörur til eigin nota.
    Framangreindir aðilar skulu greiða úrvinnslugjald við tollafgreiðslu.
  3. Allir sem framleiða gjaldskyldar vörur innanlands.
    Hvert uppgjörstímabil vegna innlendrar framleiðslu er tveir mánuðir; janúar og febrúar, mars og apríl, o.s.frv. Gjalddagi er 28. dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
    Framangreindir aðilar skulu eigi síðar en á gjalddaga ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs úrvinnslugjald af gjaldskyldum vörum sem voru seldar eða afhentar á tímabilinu. Innlendum framleiðendum sem keypt hafa aðföng til gjaldskyldrar framleiðslu sinnar og greitt af þeim úrvinnslugjald er heimilt að draga það frá við endanleg skil gjaldsins.
  4. Allir sem skyldu bera til að greiða úrvinnslugjald af ökutæki, sbr. það sem fram hefur komið um það hér að framan.
    Gjalddagar úrvinnslugjalds á ökutæki eru 1. janúar ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. janúar - 30. júní og 1. júlí ár hvert vegna gjaldtímabilsins 1. júlí - 31. desember. Gjaldið skal innheimt með bifreiðagjaldi.

Gjaldskyldan, samkvæmt töluliðum 1 - 3 hér að framan, tekur til allra framleiðenda og innflytjenda, svo sem einstaklinga, félaga, sjóða og stofnana, sveitarfélaga og stofnana þeirra, ríkissjóðs, ríkisstofnana, erlendra verktaka og annarra aðila sem flytja inn eða framleiða umræddar vörur. Samkvæmt reglugerð um úrvinnslugjald telst þó sá aðili sem tappar drykkjarvöru á gjaldskyldar samsettar pappaumbúðir, sem greitt hefur verið úrvinnslugjald af við innflutning, ekki innlendur framleiðandi. Það sama gildir um þann er við sólningu hjólbarða notar einvörðungu gjaldskyld hráefni.

Aðilar, sem gjaldskyldir eru skv. töluliðum 1 og 3 hér að framan, skulu ótilkvaddir og eigi síðar en 15 dögum áður en úrvinnslugjaldsskyld starfsemi hefst tilkynna atvinnurekstur sinn eða starfsemi til skráningar hjá ríkisskattstjóra. Sjá RSK 10.80.

Úrvinnslugjald myndar stofn til virðisaukaskatts.

Álagning gjalds

Álagning og innheimta úrvinnslugjalds af gjaldskyldum innfluttum vörum heyrir undir tollstjóra en skattstjórar eiga að annast álagningu gjaldsins vegna innlendrar framleiðslu. Ríkisskattstjóri annast álagningu úrvinnslugjalds af ökutækjum.

Skýrslur, álag og dráttarvextir

Allir gjaldskyldir framleiðendur vöru innanlands skulu eigi síðar en á gjalddaga hvers uppgjörstímabils skila skýrslu í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður. Sjá RSK 10.81 og RSK 10.82. Verði vanskil skal ríkisskattstjóri áætla gjald og skal gjaldskyldur aðili jafnframt sæta álagi sem er 1% af þeirri upphæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó ekki hærra en 10%. Einnig reiknast dráttarvextir.

Úrvinnslusjóður

Úrvinnslusjóður er stofnun í eigu ríkisins og heyrir undir umhverfisráðherra. Sjóðurinn fer með framkvæmd laganna um úrvinnslugjald og er ráðherra til ráðgjafar um mál þau sem undir lögin og reglugerðina falla. Sjóðurinn sér um umsýslu úrvinnslugjalds og ráðstöfun þess.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook