Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattar og gjöld  > Virðisaukaskattur  > Endurgreiðsla vsk
Veftré   A- A+

Endurgreiðsla virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja

1.0 Almennt.

Samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 288/1995, geta erlend fyrirtæki, sem hvorki hafa búsetu né starfsstöð á Íslandi, sótt um endurgreiðslu á virðisaukaskatti sem það hefur greitt hér á landi, eftir 1. mars 1995, vegna kaupa á vörum og þjónustu til atvinnustarfsemi sinnar.

Slík endurgreiðsla getur átt sér stað til erlendra fyrirtækja sem væru skráningarskyld samkvæmt 5. og 6. grein laga um virðisaukaskatt, ef fyrirtækið væri skráningarskylt á Íslandi. Það þýðir m.a. að ferðaskrifstofur, vátryggingarfélög, bankar og fjármálafyrirtæki geta ekki fengið endurgreiðslu.

Að auki skal fyrirtækið, á því tímabili sem umsóknin varðar, hvorki hafa selt vörur né skattskylda þjónustu hér á landi.

Endurgreiðsla virðisaukaskatts til erlends fyrirtækis getur aðeins orðið að svo miklu leyti sem íslensk fyrirtæki geta talið til innskatts virðisaukaskatt af innkaupum sínum, samkvæmt 15. og 16. grein laga um virðisaukaskatt.

Það veldur því m.a. að hvorki er hægt að óska endurgreiðslu virðisaukaskatts af innkaupum í tengslum við fæðiskaup eiganda og starfsfólks fyrirtækisins né vegna risnu og gjafa.

2.0 Umsóknir.

2.1 Eyðublað.

Umsókn um endurgreiðslu skal send á eyðublaði RSK 10.29 (Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja).

Umsóknina skal senda til:

Skattstjórinn í Reykjavík,
Virðisaukaskattsskrifstofa,
Tryggvagötu 19,
IS - 150 REYKJAVÍK.

Eyðublaðið skal fylla út á íslensku eða ensku, með prentstöfum eða vélrita.

2.2 Tímabil.

Umsókn um endurgreiðslu skal taka til kaupa á vörum eða þjónustu á tímabili sem er minnst tveir mánuður þ.e. janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember, og ekki fara yfir eitt almanaksár. Tímabilið getur þó verið styttra en tveir mánuðir ef um er að ræða eftirstöðvar almanaksárs. Umsókn skal hafa borist 15. dag næsta mánaðar eftir að viðkomandi tímabili lýkur og ekki síðar en sex árum eftir lok þess almanaksárs sem umsóknin tekur til.

2.3. Lágmarksupphæðir.

Fjárhæð virðisaukaskatts sem sótt er um endurgreiðsla á hverju sinni skal nema a.m.k. 50.300 kr. Ef umsókn tekur til almanaksárs eða eftirstöðva þess skal upphæðin þó vera að lágmarki 9.800 kr.

2.4. Yfirlýsing.

Á umsóknareyðublaði skal skýra notkun þeirra aðfanga sem umsóknin tekur til. Að auki skal umsækjandi lýsa því yfir að fyrirtækið hafi á endurgreiðslutímanum hvorki afhent vörur né innt af hendi skattskylda þjónustu hér á landi sem gæti valdið skráningarskyldu og skattskyldu.

2.5 Fylgigögn.

Með umsókn skulu fylgja frumrit sölureikninga eða greiðsluskjala úr tolli þar sem kemur fram sá virðisaukaskattur sem umsækjandi hefur greitt, svo og önnur gögn er gætu varðað endurgreiðslufjárhæðina.

Reikningar og útflutningsskýrslur verða endursendar til fyrirtækisins að lokinni afgreiðslu.

Reikningurinn skal þar að auki vera dagsettur og hafa að geyma upplýsingar um nafn og heimilisfang seljanda og kaupanda, svo og um tegund, magn og verð á vöru eða þjónustu. Reikningar að fjárhæð undir 6.000 kr. sem eru gefnir út af smásölum eða öðrum fyrirtækjum sem selja aðallega til endanlegra neytenda er hinsvegar heimilt að leggja fram sem gögn þrátt fyrir að þeir hafi ekki að geyma nafn og heimilisfang kaupanda.

2.6 Vottorð.

Með umsókn skal fylgja vottorð frá þar til bærum yfirvöldum í heimalandi umsækjanda þar sem fram kemur hvers konar atvinnurekstur hann hefur með höndum.

Vottorð af þessu tagi gildir í tvö ár frá útgáfudegi og þarf ekki að senda nýtt vottorð við síðari umsókn innan gildistíma þess. Skattstjóri getur framlengt gildistíma vottorðs um tvö ár í senn, þyki staðfest að forsendur séu óbreyttar frá því vottorðið var gefið út.

2.7 Greiðsla.

Fullnægjandi umsóknir sem berast innan skilafrests og með réttum fylgigögnum verða afgreiddar einum mánuði og fimm dögum eftir lok endurgreiðslutímabils. Endurgreiðslubeiðnir sem berast eftir lok skilafrests skulu afgreiddar með beiðnum næsta endurgreiðslutímabils.

Umsækjandi getur óskað eftir að fá endurgreiðslu hér á landi eða í heimalandi sínu. Ef umsækjandi óskar eftir að greiðsla fari fram í heimalandi hans, skal hann greiða allan kostnað sem af því hlýst. Þá getur umsækjandi tilgreint hvaða greiðsluaðferð hann kýs, þ.e. greiðsla a) lögð inn á bankareikning, b) lögð inn á póstgíróreikning eða c) send með pósti.

2.8. Annað.

Umsækjandi getur sótt um endurgreiðslu meðan á dvöl hans stendur eða fyllt út umsókn síðar og sent hana með pósti eða falið umboðsmanni sínum hér á landi að sækja um og taka við endurgreiðslu fyrir sína hönd. Til þess skal nota eyðublað RSK 10.36 (Umboð vegna endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja)

Röng skýrslugjöf eða framlagning rangra eða villandi gagna, svo og röng upplýsingagjöf látin í té í því skyni að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti er refsiverð.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook