Hlunnindi af notkun einkaflugvéla - skattmat 2012
Telja skal til skattskyldra hlunninda starfsmanns notkun flugvéla (vélknúinna flugtækja) sem launagreiðandi hefur forráð yfir, þ.e. er í eigu launagreiðanda eða aðila honum tengdum, eða hann hefur á leigu frá skyldum eða óskyldum aðila, ef ferð telst vera í einkaþágu starfsmanns, fjölskyldu hans eða annarra aðila á hans vegum. Orlofs- og skemmtiferðir og ferðir sem farnar eru vegna viðburða sem ekki tengjast með beinum hætti starfi í þágu launagreiðanda teljast vera í einkaþágu. Ferðir til og frá starfsstöðvum launagreiðanda bæði innanlands og utan teljast ekki í einkaþágu starfsmanns í þessu sambandi.
Meta skal hlunnindi þessi miðað við 165.000 kr. á hvern byrjaðan flugtíma. Með flugtíma í þessu sambandi er átt við þann tíma sem ferð tekur frá því flugvél fer frá stæði á flugvelli þar til hún hefur verið stöðvuð á stæði að ferð lokinni. Sé flugvél látin bíða eftir farþega milli ferða bætist sá tími við flugtíma. Sé flugvél flogið til baka án farþega bætist sá flugtími einnig við flugtíma til útreiknings á hlunnindum.
Það er á ábyrgð launagreiðanda að fylgjast með notkun slíkra flugvéla sem hér um ræðir og reikna hlunnindi af notkun þeirra, eftir því sem efni standa til, og halda eftir staðgreiðslu af þeim hlunnindum, sbr. 1. tölul. 5. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, og 1. gr. reglugerðar nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu, með áorðnum breytingum.

