Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattmat  > Fargjöld með almenningsfarartækjum
Veftré   A- A+

Fargjöld með almenningsfarartækjum – öðrum farartækjum - skattmat 2012

Ekki skal telja til skattskyldra tekna launþega greiðslu launagreiðanda á venjulegum fargjöldum með almenningsvögnum í reglubundnum fólksflutningum að hámarki 5.000 kr. á mánuði, enda sé til þess ætlast af launagreiðanda að þessi ferðamáti sé nýttur vegna ferða í hans þágu.

Launagreiðanda er á sama hátt heimilt að greiða starfsmönnum 5.000 kr. á mánuði vegna kostnaðar við önnur farartæki, t.d. reiðhjól, sem nýtt eru vegna ferða í þágu launagreiðandans, án þess að slík greiðsla teljist til skattskyldra tekna starfsmanna. Undanþegin fjárhæð getur aldrei farið yfir 5.000 kr. á mánuði þótt greitt sé fyrir fleiri en einn ferðamáta.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook