Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattmat  > Almennt um skattmat
Veftré   A- A+

Skattmat 2012 - yfirlit

Reglur um skattmat í landbúnaði árið 2012.

Reglur um mat á tekjum af landbúnaði er að finna í reglum nr. 1284/2011 frá ríkisskattstjóra og reglur um eignamat (mat á búpeningi til eignar) er að finna í auglýsingu nr. 1301/2011 frá ríkisskattstjóra.

Reglur um skattmat vegna tekna manna tekjuárið 2012.

Eftirfarandi reglur skulu gilda um mat á hlunnindum til tekna og kostnaði til frádráttar frá tekjum vegna tekjuársins 2012, sbr. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með áorðnum breytingum, sbr. og A-lið 1. mgr. 30. gr. þeirra laga og ákvæði í c-lið 6. gr. reglugerðar nr. 483/1994, um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi. Skattmat þetta gildir einnig við staðgreiðslu opinberra gjalda á árinu 2012 nema um sé að ræða tekjur sem undanþegnar eru staðgreiðslu samkvæmt reglugerð nr. 591/1987, um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu.

Skattmatið tekur til hvers þess sem nýtur hlunninda eða er aðnjótandi gæða, sem telja ber til tekna skv. 7. gr. laga nr. 90/2003, óháð starfssambandi milli þess er lætur hlunnindi eða gæði af hendi og þess sem þeirra nýtur. Skiptir ekki máli hvort það sem meta skal til tekna er endurgjald fyrir vinnu eða er tilkomið með öðrum hætti. Þegar talað er um launamann eða starfsmann í reglum þessum skal það eftir því sem við á einnig taka til maka hans og barna, svo og hvers þess aðila sem nýtur viðkomandi hlunninda í krafti eignar eða stjórnaraðildar, vensla eða tengsla, við þann sem hlunnindin lætur í té.

Almennt um mat á hlunnindum.

Telja ber til tekna hvers konar gæði sem mönnum hlotnast og metin verða til peningaverðs og skiptir þá ekki máli hvaðan þau stafa eða í hvaða formi þau eru. Á það t.d. við um fatnað, fæði, húsnæði, hvers konar fríðindi, greiðslur í vörum eða afurðum, svo og framlög og gjafir sé verðmætið hærra en almennt gerist um tækifærisgjafir.

Þau gæði og hlunnindi, sem ekki hafa verið í krónum talin, skal meta til peningaverðs og telja þau til tekna á því verði. Skulu þau metin til tekna á gangverði eða markaðsverði á hverjum tíma nema við þau eigi sérstakt tekjumat, sbr. kafla 2 hér á eftir.

Séu hlunnindi, eða annað sem telja ber til tekna, látið af hendi gegn greiðslu sem er lægri en skattmatið eða gangverðið skal telja mismuninn til tekna.

Skattmatið í heild.

Hér er hægt að nálgast skattmatið í heild sinni

Hér fyrir neðan er hægt að skoða sérstakt tekjumat sem og frádrátt á móti tekjum:
Sérstakt tekjumatFrádráttur á móti tekjum
Starfstengd hlunnindiFrádráttur kostnaðar á móti ökutækjastyrk
FatnaðurFrádráttur á móti dagpeningum
BifreiðahlunnindiFrádráttur vegna fósturs barna
Frádráttur vegna dagvistunar eða sumardvalar barna.
Önnur vélknúin ökutæki Frádráttur stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna.
Hlunnindi af notkun einkaflugvéla Frádráttur vegna vistunar aldraðra og öryrkja
Fargjöld með almenningsfarartækjum - öðrum farartækjum Fæðisfrádráttur hjá launagreiðanda
Fæði
Íbúðarhúsnæði og orlofshús
Íþróttaiðkun
Lán

Athugið að leyfilegur frádráttur á móti dagpeningum og ökutækjastyrkjum, samkvæmt skattmati fjármálaráðherra, þarf ekki að vera sama fjárhæð og Ferðakostnaðarnefnd ákvarðar að greiða skuli starfsmönnum ríkisins. Sé leyfilegur frádráttur lægri ber að skila staðgreiðslu af mismuninum.
Sjá nýjustu tilkynningu Ferðakostnaðarnefndar

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook