Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattmat  > Starfstengd hlunnindi
Veftré   A- A+

Ýmis starfstengd hlunnindi - skattmat 2012

Ýmis starfstengd hlunnindi

Öll hlunnindi og fríðindi sem launagreiðandi lætur starfsmanni í té til einkaþarfa eru lögð að jöfnu við laun til viðkomandi og ber að telja til tekna miðað við markaðsverð eða gangverð, þ.e. til tekna skal telja fjárhæð sem nemur þeim kostnaði sem launþeginn hefði þurft að leggja út fyrir í þessu sambandi, nema um hlunnindi eða fríðindi þessi gildi sérstakt matsverð samkvæmt skattmati þessu. Hér er átt við hlunnindi og fríðindi tengd starfinu, sem starfsmaður nýtur án þess að greiða fyrir þau fullt verð, hvort sem um er að ræða að launþeginn fái eitthvað til eignar, afnota, láns eða neyslu.

Ekki skal telja til tekna almennar kaffiveitingar starfsmanna á starfsstað, afnot þeirra af heilsubótaraðstöðu á starfsstað, fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og þátttöku í námskeiðum sem tengjast starfi þeirra beint.

Ekki skal telja til tekna hlunnindi og fríðindi sem felast í árshátíð starfsmanna, starfsmannaferðum, jólagleði og sambærilegum samkomum og viðburðum, enda sé að jafnaði um að ræða viðburði sem standi öllum starfsmönnum launagreiðandans til boða og árlegur kostnaður af þeim nemi ekki hærri fjárhæð en 100.000 kr. á hvern starfsmann. Hlunnindi og fríðindi af umræddum toga umfram 100.000 kr. skulu teljast starfsmanni til tekna, hvernig sem fyrirkomulagi á greiðslum launagreiðanda er háttað.

Sömu reglur gilda um framlög launagreiðanda til starfsmannafélaga sem nýtt eru til greiðslu á sams konar kostnaði og að framan greinir.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook