Almenn skattskylda lögaðila
Í 2. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt er fjallað um ótakmarkaða skattskyldu lögaðila. Samkvæmt lagagreininni hvílir skattskyldan á eftirtöldum aðilum:
- Skráðum hlutafélögum og einkahlutafélögum, svo og samlagshlutafélögum, enda sé þess óskað við skráningu að samlagshlutafélagið sé sjálfstæður skattaðili. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagshlutafélag er sé sjálfstæður skattaðili.
- Gagnkvæmum vátryggingar- og ábyrgðarfélögum, kaupfélögum, öðrum samvinnufélögum og samvinnufélagasamböndum.
- Samlagsfélögum og sameignarfélögum með ótakmarkaðri ábyrgð félagsaðila, enda sé félagið skráð í firmaskrá hér á landi, þess óskað við skráningu að félagið sé sjálfstæður skattaðili og við skráningu afhentur félagssamningur þar sem getið sé eignarhlutfalla eigenda, innborgaðs stofnfjár svo og hvernig félagsslitum skuli háttað. Senda skal skattstjóra vottorð um skráningu og staðfest eftirrit af félagssamningi með fyrsta skattframtali þessara félaga. Hjón ein sér eða með ófjárráða börnum sínum geta ekki myndað samlagsfélag eða sameignarfélag er sé sjálfstæður skattaðili.
- Samlögum og samtökum sem hafa það að meginmarkmiði að annast vinnslu eða sölu á framleiðsluvörum félagsaðila sinna, innkaup á rekstrarvörum eða þjónustu í beinum tengslum við atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi þeirra, enda séu þau skráð í firmaskrá hér á landi og þess getið við skráningu að þau séu sjálfstæðir skattaðilar. Við skráningu skal afhentur félagssamningur þar sem getið sé eignaraðildar, innborgaðs stofnfjár svo og hvernig félagsslitum skuli háttað. Senda skal skattstjóra vottorð um skráningu og staðfest eftirrit af félagssamningi með fyrsta skattframtali þessara félaga.
- Öðrum félögum, sjóðum og stofnunum, þar meðtöldum sjálfseignarstofnunum, sem hér eiga heimili, þó ekki þau félög sem eru sérstaklega undanþegin samkvæmt 5. og 6. tölul. 4. gr. tekjuskattslaga, svo og dánarbúum og þrotabúum.

