Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattskylda  > Dánarbú
Veftré   A- A+

Dánarbú

Við andlát stofnast sérstök skattskylda dánarbús viðkomandi einstaklings. Dánarbú eru lögaðilar og bera sjálfstæða skattskyldu samkvæmt 5. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, og fer álagning á þau eftir álagningarreglum sem gilda um lögaðila, þ.e. tekjuskattur með því álagningarhlutfalli sem mælt er fyrir um í 1. mgr. 17. gr. nefndra laga.

Vakin er athygli á því að frá gildistöku 3. gr. laga nr. 165/2010 gilda sömu ákvæði um söluhagnað af sölu íbúðarhúsnæðis sem verið hefur í eigu manns hvort sem það er dánarbú mannsins sem selur eða erfingjar.

Ákvæði um skattfrelsi söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis sem fram koma í 1. mgr. 17. gr. áðurnefndra laga eiga nú við þegar selt er íbúðarhúsnæði sem er í eigu manna á söludegi jafnt og þegar um er að ræða sölu íbúðarhúsnæðis í eigu dánarbús. Kemur þá til skoðunar stærð húsnæðisins og eignarhaldstími arfláta og erfingja. Sé húsnæðið innan stærðarmarka (600 rúmmetrar í tilviki einstaklings og 1.200 rúmmetrar í tilviki hjóna/sambúðarfólks) og samanlagður eignarhaldstími arfláta og erfingja er yfir 2 ár er hagnaður af sölu þess skattfrjáls.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook