Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattskylda  > Óskattskyld félög
Veftré   A- A+

Óskattskyld félög

Eftirtaldir aðilar eru undanþegnir skattskyldu:

  1. Ríkissjóður, ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki sem hann rekur og ber ótakmarkaða ábyrgð á svo og Fiskifélag Íslands.
  2. Sýslu- og sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir sem þau reka og bera ótakmarkaða ábyrgð á.
  3. Erlend ríki og alþjóðastofnanir, af fasteignum sem þær nota vegna viðurkenndrar starfsemi sinnar hér á landi.
  4. Þeir lögaðilar sem um ræðir í 2. gr. skattalaga og hér eiga heimili, ef þeir verja hagnaði sínum einungis til almenningsheilla og hafa það að einasta markmiði samkvæmt samþykktum sínum.
  5. Félög, sjóðir og stofnanir, sbr. 5. tölul. 2. gr. skattalaga, sem ekki reka atvinnu.
  6. Lífeyrissjóðir sem starfa skv. III. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða
  7. Aðilar sem undanþegnir eru skattskyldu með sérstökum lögum.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook