Forsíða  > Rekstur / Félög  > Skattskylda  > Takmörkuð skattskylda
Veftré   A- A+

Takmörkuð skattskylda lögaðila

Í 3. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt er fjallað um takmarkaða skattskyldu. Með takmarkaðri skattskyldu lögaðila er átt við skyldu þeirra til að greiða tekjuskatt af tekjum sem uppruna eiga hér á landi, án tillits til þeirra tekna sem þeir kunna að afla annars staðar á sama tíma eða sama almanaksári. Skattskyldan nær til ákveðinna tekna svo sem hvers konar tekna af atvinnurekstri svo sem tekna vegna seldrar þjónustu hér á landi, tekna af starfsstöð sem rekin er hér á landi o.s.frv.

Í samningum sem gerðir hafa verið við önnur ríki til að koma í veg fyrir tvísköttun tekna er að finna ýmis ákvæði sem valda því að tekjur sem án slíkra samninga væru skattskyldar hér á landi, eru það ekki. Getur hér bæði komið til að skattskylda hérlendis skv. 3. gr. tekjuskattslaganna flytjist til samningsríkisins og tekjur skattskyldra aðila skv. 1. gr. skattalaga sæti takmörkun hvað skattlagningu varðar hér á landi.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook