Arður - talinn sem laun
Almennt
Fari heimil arðsúthlutun hlutafélags/einkahlutafélags samtals umfram 20% af skattalegu bókfærðu eigin fé þess í árslok viðmiðunarárs skal skattleggja 50% af því sem umfram er í samræmi við 5. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, hjá þeim hluthöfum sem skylt er að reikna sér endurgjald skv. 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laganna, sbr. 3. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna. Þessi regla gildir varðandi arðgreiðslur sem ákveðnar hafa verið á tekjuárinu 2010 og síðar. Reglan gildir ekki ef um er að ræða úthlutun arðs úr fyrirtæki sem skráð er á opinberum verðbréfamarkaði.
Þannig ákvarðaðar tekjur mynda hvorki stofn til tryggingagjalds né lífeyrisiðgjalds né teljast til frádráttarbærs rekstrarkostnaðar hjá greiðanda (lögaðilanum).
Skatthlutfall
Sá hluti heimilaðs úthlutaðs arðs til hluthafa sem sæta skal sérstakri skattlagningu, en ekki teljast til fjármagnstekna, skal skattleggja hjá honum miðað við skatthlutfall samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003 (2. skattþrep). Þessar tekjur skulu þó ekki vera meðtaldar þegar reiknuð er millifærsla milli skattþrepa hjá samsköttuðum (hjónum og sambýlisfólki).
- Tekjuárið 2010 er skatthlutfallið 27% auk útsvars.
- Tekjuárið 2011 er skatthlutfallið 25,8% auk útsvars.
Reiknað endurgjald
Vinni maður við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, þ.m.t. við atvinnurekstur eða starfsemi sem rekin er í sameign með öðrum, eða vinni maður við atvinnurekstur lögaðila þar sem hann er ráðandi aðili vegna eignar- eða stjórnunaraðildar, skal hann reikna sér endurgjald fyrir starf sitt. Á sama hátt skal reikna endurgjald fyrir starf sem innt er af hendi af maka manns eða barni hans, sé starfið innt af hendi fyrir framangreinda aðila. (Sjá nánar í 2. mgr. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003).
Reiknað endurgjald fyrir vinnu manns skal ekki vera lægra en launatekjur hans hefðu orðið ef unnið hefði verið fyrir ótengdan eða óskyldan aðila. Sama gildir um endurgjald fyrir starf maka manns, barns hans innan 16 ára aldurs á tekjuárinu, venslamanns hans eða nákomins ættingja. Við ákvörðun lágmarksendurgjalds skal höfð hliðsjón af raunverulegum tekjum fyrir sambærileg störf að viðbættum hvers konar hlunnindum og skiptir ekki máli hvernig þau eru greidd eða í hvaða formi þau eru. Ákvörðun reiknaðs endurgjalds samkvæmt þessari málsgrein er óháð ákvörðun launa skv. 11. gr. laga nr. 90/2003. (Sjá nánar í 58. gr. laga nr. 90/2003).
Ákvæðin um ákvörðun reiknaðs endurgjalds gilda um starf á vegum lögaðila eftir því sem við getur átt, enda vinni maður við atvinnurekstur lögaðila þar sem hann, maki hans, barn eða nákomnir ættingjar hafa ráðandi stöðu vegna eignar- eða stjórnunaraðildar, þó ekki ef um er að ræða starf á vegum lögaðila sem skráður er á opinberum verðbréfamarkaði.
Ráðandi aðili
Maður telst hafa ráðandi stöðu í sambandi við ákvörðun um reiknað endurgjald ef hann einn eða ásamt maka, börnum, foreldrum, systkinum eða öðrum nákomnum ættingjum á samtals 50% hlut eða meira í lögaðila, enda eigi hver um sig a.m.k. 20% hlut í þeim lögaðila. Það sama gildir einnig um starfandi hluthafa sem ekki eru tengdir fjölskylduböndum.
Staðgreiðsluskil
Skila á fjármagnstekjuskatti af arði á því uppgjörstímabili sem greiðsla fer fram eða í síðasta lagi á síðasta uppgjörstímabili þess tekjuárs sem ákvörðun um úthlutun fer fram á. Af þeim hluta arðgreiðslu sem telst til launa og skattlagður er samkvæmt sérstökum reglum á að skila staðgreiðslu á venjulegri staðgreiðsluskilagrein vegna launa í þeim sama mánuði og greiðslan átti sér stað, eða í síðasta lagi með desemberskilagreininni sem greidd er í janúar. Þetta er gert á sama hátt og varðandi venjubundin mánaðarleg laun og skil á staðgreiðslu vegna þeirra, þ.m.t. rafrænt. Það á hvorki að greiða tryggingagjald né lífeyrissjóðsiðgjald af þessum hluta arðgreiðslunnar og staðgreiðsluhlutfallið á alltaf að vera samkvæmt miðjuþrepi.
Launamiðar
Eftir áramótin þarf viðkomandi félag að skila launamiðum til ríkisskattstjóra vegna launagreiðslna á árinu 2011, þ.m.t. þeim hluta arðgreiðsla sem talinn er sem laun. Sérstakur nýr reitur nr. 210 verður í launamiða vegna þessarar greiðslu. Tilgreina skal afdregna staðgreiðslu af þessum hluta arðgreiðslu með annarri staðgreiðslu vegna launa.
Hlutafjármiðar
Í hlutafjármiða þarf m.a. að gera grein fyrir heildararðgreiðslu í reit 78. Tilgreina skal staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts í reit 79, þ.e. af beina arðshlutanum. Í reit 75 skal síðan tilgreina þann hluta arðs sem telst vera laun. Ekki á að tilgreina afdregna staðgreiðslu af þeirri fjárhæð, enda er gerð grein fyrir henni í launamiða.
Skattframtal einstaklings
Sá hluti arðgreiðslu sem telja ber sem laun viðkomandi einstaklings mun verða áritaður í skattframtal í sérgreindan reit miðað við framkomna launamiða, enda miðast skattlagning þessara tekna ætíð við sama skatthlutfall en tekur ekki breytingum miðað við fjárhæð annarra tekna. Sé upplýsingagjöf viðkomandi félags ekki fullnægjandi ber framteljanda að færa launahluta arðs í þennan sérstaka reit í skattframtali sínu.
Skattframtal lögaðila
Ekki skal sérgreina í skattframtali hlutafélaga/einkahlutafélaga þann hluta arðgreiðslna félagsins sem sætir sérstakri skattlagningu hjá viðkomandi hluthafa, heldur ber að færa heildarfjárhæð arðgreiðslna í skattframtalið með venjubundnum hætti.
