Endurgreiðsla á staðgreiddum opinberum gjöldum
Ríkisskattstjóra er heimilt að taka til greina umsókn um endurgreiðslu á afdreginni staðgreiðslu tekjuársins þegar umsækjandi hefur sannanlega greitt hærri staðgreiðslu en honum bar miðað við væntanlega álagða skatta og gjöld.
Heimildin nær þó eingöngu til umsækjenda sem sækja um af eftirtöldum ástæðum:
- Að umsækjandi hafi stundað eða muni stunda nám í a.m.k. 4. mánuði á staðgreiðsluárinu, eða atvinnumissis eða verulegrar skerðingar á tekjum.
- Að umsækjandi hafi veikst eða slasast á árinu og það haft í för með sér verulega tekjuskerðingu fyrir hann, eða að umsækjandi hafi látið af störfum á árinu vegna aldurs og sú breyting skert tekjur hans verulega.
- Að maki umsækjanda hafi látist á árinu.
- Vegna millifærslu vegna skattþrepa. Dæmi um útreikninga.
Hægt er að sækja um endurgreiðslu staðgreiðslu á eyðublaðinu RSK 5.09 á tímabilinu 1. október til 1.mars.
Úrskurður ríkisskattstjóra er endanleg ákvörðun í málinu.
Mikilvægt er að fram komi á umsókn um endurgreiðslu áætlaðar tekjur, bætur eða styrkir það sem eftir er ársins (eins nákvæmt og unnt er). Ef þessar upplýsingar vantar verður umsókninni synjað að svo stöddu
