Áhersluatriði ríkisskattstjóra
Ríkisskattstjóri hefur einfaldað stefnumið embættisins frá því sem áður hefur verið. Jafnframt hafa áherslur embættisins verið endurmetnar þar sem sérstaklega hefur verið hugað að hinum faglega þætti embættisins með það fyrir augum að hann yrði styrktur með breyttu verklagi og nýju skipulagi.
Helstu einkenni í skipulagi RSK er að starfsemi embættisins er skipt í fjögur meginsvið, skattasvið, stjórnsýslusvið, tækni- og áætlunarsvið og fyrirtækjaskrá. Jafnframt er rekstur stoðdeilda skilgreindur er gengur þvert á meginsvið RSK. Þar er um að ræða rekstur skrifstofu, starfsmannamál, öryggismál, ritstjórn Tíundar. Meðferð ársreikninga og eftirlit með þeim er auðkennt sérstaklega.
Megináherslur ríkisskattstjóra eru:
- samræmi í skattframkvæmd
- veita góða þjónustu
- skilvirk afgreiðsla stjórnsýsluerinda
- öruggt skráarhald
- skilvirkt skatteftirlit
- öruggur rekstur tölvukerfa
- hagkvæmni í rekstri
- fjárlög séu virt
Meginmarkmið ríkisskattstjóra er að skattskil almennings og fyrirtækja séu rétt og í samræmi við lögbundnar skyldur. Það er einnig eitt af meginmarkmiðum ríkisskattstjóra að þeir sem leiti til embættisins með ósk um þjónustu, svo sem að skrá fyrirtæki fá þjónustuna á öruggan og góðan hátt í samræmi við gildandi lagaákvæði.
Öll áhersluatriði ríkisskattstjóra eru leiðarljós á þeirri vegferð og sett fram með það fyrir augum að auðveldara sé að ná meginmarkmiðum ríkisskattstjóra.

