Forsíða  > Um RSK  > Starfsmannastefna  > Jafnrétti
Veftré   A- A+

Jafnréttisstefna ríkisskattstjóra

1. Meginstefna

Það er stefna ríkisskattstjóra að gætt sé fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla og að hver starfsmaður sé metinn á eigin forsendum. Kynbundin mismunun er þannig andstæð þeim markmiðum að jafnræði skuli ríkja í hvívetna milli starfsmanna. Verði slíkt uppvíst skal rétta hlut þess sem ójafnræðis hefur sætt.

2. Markmið

Markmið jafnréttisstefnu ríkisskattstjóra er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla við störf hjá embættinu og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum, óháð kynferði. Þetta á m.a. við um sama rétt til launa, starfsaðstöðu, tilfærslu í starfi og endurmenntunar.

3. Leiðir að markmiðum

  1. Gæta skal jafnréttis við ráðningar í störf og tilfærslur í starfi.
  2. Gera skal starfsmönnum kleift að samræma vinnu og einkalíf.
  3. Greiða skal sömu laun fyrir jafnt metin eða sömu störf.
  4. Konur og karlar skulu hafa jafnan aðgang að starfsmenntun og -þjálfun.
  5. Einelti og kynferðisleg áreitni verður ekki liðin.

5. Ráðningar

Við nýráðningar eru störf í boði jafnt konum og körlum. Standi val á milli tveggja jafnhæfra einstaklinga sem sækja um auglýsta stöðu skal sá af því kyni sem er í minnihluta í slíkum störfum hjá embættinu að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningu.

6. Samræming vinnu og einkalífs

Starfsfólk skal eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma þar sem því verður við komið til að auðvelda samræmingu starfs og einkalífs. Í vissum tilvikum getur starfsmaður einnig unnið hluta starfs síns að heiman. Leitast skal við að taka tillit til einstaklingsbundinna aðstæðna starfsmanna eftir því sem unnt er.

7. Launakjör

Við ákvörðun launa og annarra starfskjara skal þess gætt að starfsmönnum sé ekki mismunað eftir kyni. Gæta skal þess að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna við sambærileg störf.

8. Starfsþróun

Konur og karlar skulu hafa sömu möguleika til að sækja námskeið, endurmenntun og til að taka þátt í starfsþjálfun.

9. Samskipti á vinnustað

Þjónusta við almenning, viðskiptalífið og hið opinbera kallar á fjölbreyttar lausnir sem best verður mætt með því að hjá ríkisskattstjóra starfi fólk á öllum aldri með mismunandi bakgrunn, reynslu og menntun. Ætlast er til að allir starfsmenn embættisins umgangist hver annan af virðingu og kurteisi og stuðli þannig að vinsamlegu og jákvæðu andrúmslofti í samfélagi vinnustaðarins. Ef ágreiningur verður milli starfsmanna skal leitast við að leysa hann með uppbyggilegum hætti. Einelti og kynferðisleg áreitni er hegðun sem er ekki liðin.

10. Ábyrgð

Ábyrgð á framgangi jafnréttismála er hjá starfsmannastjóra og forstöðumönnum. Starfsmannastjóri skal vinna að því að jafnréttisstefnu sé framfylgt og leggja mat á hvort markmiðum hennar sé náð. Starfsmannastjóri skal endurskoða jafnréttisstefnu þessa á tveggja ára fresti og leggja tillögu að endurskoðaðri jafnréttisstefnu fyrir ríkisskattstjóra eigi síðar en í desember 2013.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook