Álagningarseðlar 2007
Mánudaginn 30. júlí kl. 16:00 geta allir einstaklingar nálgast álagningarseðla sína rafrænt á þjónustusíðu á skattur.is, með veflykli sínum.
Hafi veflykill glatast má óska eftir nýjum á skattur.is og fá hann sendan í heimabanka eða póstlagðan á lögheimili viðkomandi.
Seðlar verða bornir út þriðjudaginn 31. júlí til þeirra sem ekki afþökkuðu álagningarseðla á pappír.
Ríkisskattstjóri
