www.rsk.is
Nýr upplýsingavefur ríkisskattstjóra var opnaður í dag.
Nýi vefurinn er nokkuð frábrugðin þeim gamla og felst megin breytingin í því að efni er nú skipt eftir markhópum. Í því felst að efni er flokkað eftir því hvort það á við um einstaklinga, rekstur/félög eða fagaðila, auk þess sem allt sem snýr að fyrirtækjaskrá er á sérstöku svæði. Samhliða þessu hefur leiðarkerfið verið einfaldað. Við hönnun á nýjum rsk.is var tekið mið af því að vefurinn standist kröfur um aðgengi fyrir fatlaða.
Upplýsingavefur ríkisskattstjóra hefur vaxið verulega að umfangi undanfarin ár. Breytingin nú er ekki síst gerð í þeim tilgangi að gera notendum auðveldara að nálgast það efni sem leitað er að, þ.e. gera vefinn notendavænni.
Eftirtaldir starfsmenn ríkisskattstjóra önnuðust framleiðslu á hinum nýja vef embættisins:
Tæknileg hönnun og framleiðslustjórn: Magnús Örn Gylfason
Rekstrarumsjón og innfærsla efnis: Einar Valur Kristinsson
Teikning, litaval og útlitshönnun: Logi Halldórsson
Skipulagning, umsjón og ritstjórn: Jóhannes Jónsson
Tæknilegur vefstjóri er Magnús Örn Gylfason.
Ritstjóri efnis er Jóhannes Jónsson.
Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri Fjármálaráðuneytisins opnaði vefinn formlega.
Frá skattstjórafundi við opnun vefsins.

