Ríkisskattstjóri er stofnun ársins 2008

Í flokki stærri stofnana er ríkisskattstjóri stofnun ársins 2008, samkvæmt niðurstöðum könnunar SFR, stéttarfélags í almannaþágu. Skattrannsóknarstjóri ríkisins fékk hæstu einkunn í hópi smærri stofnana, en stofnunin var valin stofnun ársins þriðja árið í röð.
Árangur ríkisskattstjóra er glæsilegur þar sem stofnunin hækkar sig um 45 sæti milli ára. Fyrrum skattrannsóknarstjóri ríkisins, Skúli Eggert Þórðarson, er einmitt í dag ríkisskattstjóri
Þess má geta að skattstofa Austurlands og skattstofa Vestfjarða hlutu báðar viðurkenninguna fyrirmyndarstofnun ársins 2008.
Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri og
Bryndís Kristjánsdóttir, skattrannsóknarstjóri ríkisins.
Heimildir:
http://sfr.is/frettir/nr/832/
http://www.visir.is/article/20080517/FRETTIR01/904590433/-1/FRETTIR
