Forsíða  > Um RSK  > Tilkynningar  > 2008  > frett_17-10-2008.is.html
Veftré   A- A+

Tilkynningar



17. október 2008 - Frestun á eindögum staðgreiðslu og tryggingagjalds

Til nánari skýringar á dreifibréfi Fjármálaráðuneytisins, dags. 15. október 2008, til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík, um tímabundna niðurfellingu álags á staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds, vill Ríkisskattstjóri í samráði við ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

  1. Varðandi álag á staðgreiðslu:
    Með dreifibréfinu er álag fellt niður dagana 15. til 22. október. Þar sem álag reiknast frá eindaga og er 1% á dag í 10 daga, sbr. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, reiknast álag fyrir umrætt tímabil aðeins í 3 daga ef greitt er eftir 22. október (1% á dag frá 23. október til 25. október) og er því að hámarki 3%.
     
  2. Varðandi dráttarvexti vegna tryggingagjalds:
    Með dreifibréfinu er veittur greiðslufrestur á dráttarvaxtaútreikningi til 22. október. Ef tryggingagjald er greitt eftir 22. október, fyrir umrætt tímabil, ber að greiða dráttarvexti frá gjalddaga, þ.e. 1. október.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook