Forsíða  > Um RSK  > Tilkynningar  > 2008  > frett_17-11-2008.is.html
Veftré   A- A+

Tilkynningar



17. nóvember 2008 - Frestun á eindögum staðgreiðslu og tryggingagjalds

Til nánari skýringar á fréttatilkynningu Fjármálaráðuneytisins, dags. 14. nóvember 2008, til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík, um tímabundna niðurfellingu álags á staðgreiðslu opinberra gjalda og tryggingagjalds, vill ríkisskattstjóri í samráði við ráðuneytið koma eftirfarandi á framfæri:

  1. Varðandi álag á staðgreiðslu:
    Með dreifibréfinu er álag fellt niður dagana 17. til 24. nóvember. Þar sem álag reiknast frá eindaga og er 1% á dag í 10 daga, sbr. 2. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, reiknast álag fyrir umrætt tímabil aðeins í 3 daga ef greitt er eftir 24. nóvember (1% á dag frá 25. nóvember til 28. nóvember) og er því að hámarki 3%.
  2. Varðandi dráttarvexti vegna tryggingagjalds:
    Með dreifibréfinu er veittur greiðslufrestur á dráttarvaxtaútreikningi til 24. nóvember. Ef tryggingagjald er greitt eftir 24. nóvember, fyrir umrætt tímabil, ber að greiða dráttarvexti frá gjalddaga, þ.e. 1. nóvember.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook