Forsíða  > Um RSK  > Tilkynningar  > 2008  > frett_30-10-2008.is.html
Veftré   A- A+

Tilkynningar



Breyting á virðisaukaskattsnúmerum.

Ríkisskattstjóri vill vekja athygli á því að virðisaukaskattsnúmer munu breytast. Virðisaukaskattsnúmer hafa hingað til aðeins verið fimm stafir en verða framvegis sex stafir. Rétt þykir að leggja áherslu á að ekki verða gerðar breytingar á þeim virðisaukaskattsnúmerum sem þegar hefur verið úthlutað. Þau verða áfram fimm stafir en ný virðisaukaskattsnúmer sem úthlutað verður munu verða sex stafir. Ráðgert er að byrjað verið að úthluta nýjum virðisaukaskattsnúmerum á þessu formi í nóvember nk.

Þessar breytingar á virðisaukaskattsnúmerum munu t.d. líklega hafa áhrif á bókhaldskerfi og ýmsan annan viðskiptahugbúnað sem vinnur með fjárhagsupplýsingar og eins á útgáfu sölureikninga. Þessum tölvukerfum gæti þannig hugsanlega þurft að breyta til samræmis við ofangreint.

Ástæða þessarar breytingar er sú að virðisaukaskattnúmerum hefur jafnt og þétt fjölgað og nálgast nú hundrað þúsund.

Frekari upplýsingar varðandi þessa breytingu veitir Sæmundur Guðmundsson í síma 563 1162.

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook