Forsíða  > Um RSK  > Tilkynningar  > 2009  > frett_11-05-2009.is.html
Veftré   A- A+

Tilkynningar



Ný rafræn skilríki á snjallkortum fyrir endurskoðendur og bókara tekin í notkun fyrir skil á skattframtölum með DK-framtalsforriti.

Ný rafræn skilríki á snjallkortum.

Fjármálaráðuneytið fyrir hönd ríkisins og Auðkenni hf fyrir hönd bankakerfisins hafa verið í samstarfi um undirbúning á útgáfu og innleiðingu rafrænna skilríkja á snjallkortum og debetkortum fyrir landsmenn. Markmið með notkun rafrænna skilríkja eru m.a. örugg, vottuð og ábyrg rafræn samskipti milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Ríkisskattstjóri hefur ákveðið að styðja og taka í notkun rafræn skilríki á snjallkortum, starfsskilríki, frá og með 7. maí 2009 vegna skila á skattframtölum með DK-framtalsforriti. Þessi snjallkort eru gefin út af Auðkenni í samstarfi við bankastofnanir. Rafræn skilríki á debetkortum eru einnig studd. Rafræn skilríki eru persónuskilríki og handhafar skilríkjanna á kortum geta notað þau til rafrænnar auðkenningar og undirritunar í tölvusamskiptum við hin ýmsu fyrirtæki og stofnanir. Nánari upplýsingar um rafræn skilríki er að finna á vefnum skilriki.is.

Útgáfu eldri rafrænna skilríkja hætt.

Útgáfu rafrænna skilríkja Tollstjóra, svonefndra vefafgreiðsluskilríkja, hefur nú verið hætt. Áfram má nota þau vefafgreiðsluskilríki sem í gildi eru hjá viðskiptavinum þar til þau falla úr gildi. Til að skila skattframtali með DK-framtalsforriti eftir að vefafgreiðsluskilríki þín falla úr gildi, þarftu því að vera með gild rafræn skilríki á snjallkorti frá Auðkenni. Við skil skattframtala er því hægt að nota gild vefafgreiðsluskilríki og rafræn skilríki í snjallkorti (debetkort og starfsskilríki).

Sækja um starfsskilríki frá Auðkenni.

Þú getur sótt um starfsskilríki frá Auðkenni með því að smella á tengilinn: umsoknir.audkenni.is.

Nauðsynlegt er að sækja tímanlega um starfsskilríkin til að tryggja samfelldan aðgang að skilum framtala með DK-forritinu.

Vantar þig aðstoð?

Deila á Facebook