Fjármálaráðuneytið
Fjármálaráðherra er Oddný G. Harðardóttir.
Arnarhváli við Lindargötu,
150 Reykjavík.
Opið 8.30-16.00.
Sími: 545 9200. Fax: 562 8280.
Veffang: www.fjarmalaraduneyti.is
Fjármálaráðherra er æðsti yfirmaður skattamála. Fjármálaráðuneytið er ráðherra til aðstoðar um hvað eina sem lýtur að stefnumótun og framkvæmd hennar í málum er undir ráðuneytið falla, þ.m.t. skattamálum.
Ráðuneytið skal m.a. undirbúa mál til framlagningar fyrir Alþingi, í ríkisstjórn og eiga samvinnu við önnur ráðuneyti og hagsmunaaðila. Þá hefur það víðtækar stjórnsýsluskyldur gagnvart þeim stofnunum sem starfa á ábyrgð þess.
Samkvæmt lögum fer fjármálaráðuneytið m.a. með mál er varða fjármál ríkisins, undirbúning og samningu fjárlaga, eignir ríkisins, skatta og tolla.
Tekju- og lagaskrifstofa fer með skattamál. Þar er unnið að lagaundirbúningi og lagatúlkun, rannsóknum á áhrifum skatta og skattabreytinga og metin áhrif þeirra á tekjur ríkissjóðs. Til skattamála teljast löggjöf og framkvæmd skatta, skatteftirlit, reglugerðir um skattamál og útgáfa dóma og úrskurða á sviði skattaréttar. Ennfremur samskipti við embætti ríkisskattstjóra, skattstofur og embætti skattrannsóknarstjóra um fagleg málefni.
Skattlagning og innheimta opinberra gjalda hvílir á stofnunum sem heyra undir tekju- og lagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins.

