Forsíða  > Önnur skattyfirvöld  > Skattrannsóknarstjóri
Veftré   A- A+

Skattrannsóknarstjóri

Skattrannsóknarstjóri er Bryndís Kristjánsdóttir.

Borgartúni 7,
150 Reykjavík.
Staðsetning á korti

Sími: 550 8800. Fax: 550 8850.

Veffang: www.skattrann.is

Meginhlutverk skattrannsóknarstjóra er að rannsaka og upplýsa brot á skattalögum.

Í erindisbréfi skattrannsóknarstjóra ríkisins segir m.a.:

"Verkefni embættis skattrannsóknarstjóra ríkisins er að rannsaka mál sem skattstjórar og ríkisskattstjóri vísa til hans auk rannsókna að eigin frumkvæði. Jafnframt skal skattrannsóknarstjóri ríkisins koma, af hálfu hins opinbera, fyrir yfirskattanefnd við meðferð sektarmála, semja kröfugerð í sektarmálum og reka málið fyrir nefndinni, þ.m.t. með munnlegum málflutningi ef slíkt er ákveðið. Þá skal skattrannsóknarstjóri ríkisins annast undirbúning refsimeðferðar í alvarlegri skattsvikamálum með vísun til opinberrar rannsóknar.

Skattrannsóknarstjóri og fjármálaráðuneytið vinna sameiginlega að langtímaáætlun til fimm ára í senn, þar sem stefnumótun fyrir embættið og ofangreind markmið eru nánar útfærð og skilgreind. Áætlunina má endurskoða eftir þörfum. Embættið skal halda til haga upplýsingum um aðgerðir í einstökum rannsóknarmálum svo sem endurákvarðanir opinberra gjalda, viðurlagaákvarðanir, bókaðar skýrslutökur og aðsend og útsend bréf til stofnunarinnar. Fjármálaráðuneytið skal ætíð geta kynnt sér málsmeðferð einstakra mála þegar efni þykir til."

Vantar þig aðstoð?

  • Netsamtal við þjónustuver, opið 9:30 - 15:30
Deila á Facebook