Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2023
Álagningu tekjuskatts 2023 á
lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem
og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna
tekjuársins 2022 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, er
lokið.
Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef Skattsins á www.skattur.is.
Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur fimmtudaginn 30. nóvember 2023.
Álagningarskrá vegna álagningar 2023 á lögaðila verður lögð fram dagana 16. nóvember til 30. nóvember 2023 að báðum dögum meðtöldum á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík í Katrínartúni 6.
Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.
Reykjavík, 31. október 2023
Snorri Olsen
ríkisskattstjóri