Tölulegar upplýsingar um álagningu lögaðila 2022
Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2022 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.
Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2022 var 67.767 en þar af voru 50.195 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.572 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 43.377 framtöl borist eða 86,42% framtala. Í fyrra höfðu 86,08% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 7.182 lögaðila voru áætluð sem er 14,31% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 13,85% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.
Alls voru 218.294.143.980 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 38.027.657.599 kr. eða 21,10% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 10.888.882.821 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 1.173.430.946 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 714.597.867 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).
Skipting opinberra gjalda lögaðila 2022 er þannig:
Gjald | Fjárhæð | Breyting |
Tryggingagjald | 102.291.971.410 | 5,41% |
Tekjuskattur | 100.300.586.480 | 44,95% |
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki | 5.335.883.561 | 11,54% |
Fjársýsluskattur | 3.366.495.175 | 9,14% |
Sérstakur fjársýsluskattur | 4.014.373.213 | 114,37% |
Fjármagnstekjuskattur | 2.052.671.046 | -40,10% |
Útvarpsgjald | 880.328.800 | 8,79% |
Jöfnunargjald alþjónustu | 51.834.295 | 8,19% |
Samtals | 218.294.143.980 | 21,10% |
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar | 10.888.882.821 | 12,08% |