Gistináttaskattur

Gistináttaskattur var tekinn upp að nýju frá 1. janúar 2024

Nokkur atriði sem huga þarf sérstaklega að í því ljósi:

  • Nýskráning og endurskráning: Allir gistináttaskattsskyldir rekstraraðilar þurfa að skrá sig á gistináttaskattsskrá, einnig þeir sem voru áður á skrá. Opna skráningu.
  • Gisting sem seld var fyrir 1. janúar 2024 en afhent á árinu 2024 eða síðar er undanþegin gistináttaskatti, enda hafi reikningur verið gefinn út fyrir heildarverði gistingar í síðasta lagi 31. desember 2023.
  • Fjárhæðir skattsins hafa breyst.
  • Gistináttaskattur er nú gerður upp á tveggja mánaða fresti hjá öllum virðisaukaskattsskyldum aðilum.
  • Rekstraraðilar skemmtiferðaskipa þurfa nú einnig að standa skil á gistináttaskatti.

Almennt um gistináttaskatt

Gistináttaskattur er sérstakur skattur sem lagður er á sölu gistingar. Skatturinn var tekinn upp 1. janúar 2012 og er lagður á hverja selda gistináttaeiningu. Slík eining er skilgreind sem leiga á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring. Með gistiaðstöðu er átt við herbergi, húsnæði eða svæði sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, að svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar.

Skatturinn skal lagður á af hálfu rekstraraðila hótela, gistiheimila, tjaldsvæða og annarra sem veita slíka þjónustu. 

Fjárhæð gistináttaskatts:

Fyrir sölu á gistiaðstöðu skal frá áramótum innheimta gistináttaskatt sem hér segir:

  • Fyrir hótel, gistiheimili og aðra gististaði sem hafa rekstrarleyfi í flokki II–IV samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald - 600 kr.
  • Fyrir gistiaðstöðu á tjaldstæði og vegna stæða fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi - 300 kr.
  • Fyrir gistiaðstöðu um borð í skemmtiferðaskipi á meðan það dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins – 1.000 kr.

Skil á gistináttaskatti eru rafræn. Með rafrænum skilum er m.a. hægt að skila skýrslu, stofna kröfu til greiðslu í heimabanka, gera leiðréttingar og fá yfirlit. Áminningar um eindaga eru sendar í tölvupósti, auk orðsendinga og annarra tilkynninga.

Gistináttaeining

Gistináttaeining er leiga á gistiaðstöðu (gistirými) í allt að einn sólarhring. Gistirýmið er húsnæði eða svæði sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar, svo sem hús, íbúðir og herbergi. Afmarka verður hverju sinni það gistirými sem verið er að leigja út. Almennt er ekki miðað við einstakling, en gistirýmið er þó í ákveðnum tilvikum afmarkað við svefnrými fyrir hvern einstakling fyrir sig. Tilhögun greiðslu ræður ekki úrslitum í þessu sambandi.

Hótel

Herbergi á hótelum teljast til gistináttaeininga í þessu sambandi. Ef hótel leigja út íbúðir teljast þær hver og ein gistináttaeining.

Gistiheimili

Herbergi sem leigð eru sérstaklega út teljast til gistináttaeininga. Ef hvert rúm/svefnpokapláss er leigt út sérstaklega telst hvert og eitt þeirra gistináttaeining. Ef gistiheimili er leigt út í heilu lagi er um eina gistináttaeiningu að ræða. Í slíkum tilvikum er þannig ekki miðað við fjölda gistirýma, þótt almennt séu þau leigð út sérstaklega.

Íbúðir og orlofshús

Hver íbúð telst gistináttaeining ef hún er leigð út í einu lagi. Ef fleiri en ein íbúð er í húsnæði telst hver íbúð fyrir sig sem gistináttaeining sem miða skal skattlagninguna við. Á það einnig við þó að báðar eða allar íbúðirnar í húsnæðinu séu leigðar sama aðila. Ef herbergi í íbúð eru leigð sérstaklega telst hvert herbergi gistináttaeining.

Tjaldsvæði

Á tjaldsvæðum er stæðið undir hvert tjald gistirýmið. Stæði fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi eru með sama hætti það gistirými sem miða ber innheimtu gistináttaskatts við. Tjaldsvæði í heild sinni telst ekki gistirými í þessu sambandi.

Ef sala miðar við fjölda einstaklinga, óháð fjölda tjalda/stæða, ber að miða skattlagninguna við það. Í þeim tilvikum telst sala á hverri einstakri svefnaðstöðu sala á gistináttaeiningu.

Skemmtiferðaskip

Frá 1. janúar 2024 ber rekstraraðilum skemmtiferðaskipa að standa skil á gistináttaskatti vegna seldra gistináttaeininga á meðan það dvelur í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði ríkisins.

Fjárhæð gistináttaskatts um borð í skemmtiferðaskipum er 1.000 kr. fyrir hverja gistináttaeiningu.

Uppgjör og gjalddagar

Rafræn skil á gistináttaskatti eru gerð á þjónustuvef Skattsins. Þegar skýrslu er skilað stofnast krafa sem hægt er að greiða í vefbanka gjaldanda. Á skattur.is er einnig hægt að gera leiðréttingar og fá yfirlit. Þeir sem eru í rafrænum skilum fá sendar áminningar um eindaga í tölvupósti, auk orðsendinga og annarra tilkynninga.

Uppgjörstímabil og gjalddagar VSK-skyldra aðila

Uppgjörstímabil gistináttaskatts hjá virðisaukaskattsskyldum aðilum, þ.e. rekstraraðila hótela, gistiheimila, tjaldstæða og skemmtiferðaskipa sem notuð eru í virðisaukaskattsskylda starfsemi, eru tveir mánuðir:

TímabilGjalddagi
janúar- febrúar5. apríl
mars -apríl5. júní
maí -júní5. ágúst
júlí - ágúst5. október
september - október5. desember
nóvember - desember5. febrúar

Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.

Uppgjörstímabil og gjalddagar skemmtiferðaskipa

Uppgjörstímabil gistináttaskatts hjá rekstraraðilum skemmtiferðaskipa sem ekki eru notuð í starfsemi sem fellur undir lög um virðisaukaskatt telst vera sá tími á meðan skipið er innan tollsvæðis ríkisins hverju sinni.

Gjalddagi skemmtiferðaskipa

Gjalddagi gistináttaskatts hjá rekstraraðilum skemmtiferðaskipa sem ekki eru notuð í starfsemi sem fellur undir lög um virðisaukaskatt er sami dagur og þegar skip yfirgefur tollsvæði ríkisins. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir.

Undanþágur

Ekki skal innheimta gistináttaskatt í eftirfarandi tilvikum:

  • við sölu gistingar sem ekki ber virðisaukaskatt samkvæmt lögum um virðisaukaskatt, nema í tilviki skemmtiferðaskipa.
  • við sölu gistingar til dvalargesta um borð í skemmtiferðaskipi ef skipið leggst að höfn og fyrir liggur með sannanlegum hætti að skipið hafi verið í nauðum statt vegna áreksturs, sjóskemmda, veikinda eða ófriðar.
  • fyrir gistiaðstöðu sem áhöfn skipsins og annað starfsfólk þess hefur til umráða um borð í skipinu. 

Heimagisting

Heimagisting er gisting gegn endurgjaldi á lögheimili einstaklings eða í einni annarri fasteign sem hann hefur til persónulegra nota og er í hans eigu. Hún fellur undir rekstrarleyfi í flokki I samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Séu skilyrði heimagistingar uppfyllt ber ekki að leggja gistináttaskatt á sölu gistináttaeininga. Skilyrðin eru m.a.

  • að aðili hafi leyfi til reksturs slíkrar gistingar
  • að fjöldi seldra gistinátta á almanaksári sé ekki umfram 90 daga 
  • að heildarsöluverð gistinátta sé ekki umfram 2.000.000 kr. á almanaksári

Uppfylli aðili ekki framangreind skilyrði, og að því gefnu að honum beri að skrá starfsemi sína á virðisaukaskattsskrá, ber honum að innheimta gistináttaskatt af seldum gistináttaeiningum og standa skil á honum í ríkissjóð.

Reikningaútgáfa

Gistináttakattsskyldir aðilar sem eru í starfsemi sem fellur undir lög um virðisaukaskatt skulu tilgreina gistináttaskatt á sölureikningi eða greiðslukvittun. Gistináttaskattur myndar stofn til virðisaukaskatts. Á reikningnum þarf orðið gistináttaskattur að koma fram og heildarfjárhæð hans.

Í stað þess að gistináttaskattur sé sundurliðaður sérstaklega sem einn af nokkrum liðum sem mynda heildarfjárhæð reiknings er heimilt að tilgreina gistináttaskattinn neðst á reikningi þar sem fram kæmi að hann væri innifalinn í heildarfjárhæðinni. Þannig gæti reikningur sem er í erlendum gjaldmiðli haft texta neðst sem segði að gistináttaskattur (lodging tax) væri innifalinn í reikningsfjárhæðinni og heildarfjárhæð hans tilgreind í íslenskum krónum. Ekki nægir að tilgreina fjárhæð hans fyrir hverja nótt, heldur verður heildarfjárhæð álagðs gistináttaskatts alltaf að koma fram.

Tímabundin undanþága gistingar seld á árinu 2023

Gisting sem seld var 2023 eða fyrr en er afhent á árinu 2024 eða síðar er undanþegin gistináttaskatti enda hafi sölureikningur fyrir heildarverði gistingar verið gefinn í síðasta lagi þann 31. desember 2023.

Reikningur verður að hafa verið gefinn út fyrir heildarverði. Ekki nægir að reikningur, eða kvittun, hafi verið gefinn út vegna hluta af söluverði gistingar.

Skráning á stofnskrá gistináttaskatts

Hverjum þeim sem skattskyldur er samkvæmt lögum um gistináttaskatt ber að tilkynna starfsemi sína áður en hún hefst til skráningar hjá ríkisskattstjóra á stofnskrá gistináttaskatts.

Á tilkynningu um gistináttaskattsskylda starfsemi skal tilgreina:

  • upphafsdag starfsemi
  • lokadag starfsemi (ef við á)
  • fjölda gistirýma sundurliðað eftir tegund gistiaðstöðu

Opna skráningu á þjónustuvef Skattsins

Endurskráning

Þeir aðilar sem voru á stofnskrá gistináttaskatts áður en hann var afnuminn tímabundið þurfa að skrá sig á hana að nýju.

Fjöldi gistirýma

Við tilkynningu inn á stofnskrá gistináttaskatts skal skrá heildarfjölda gistirýma sem í boði eru, sundurliðað eftir flokkum, svo sem fjölda húsa í útleigu eða fjölda herbergja í útleigu. 

Hús, íbúðir og sumarbústaðir

Þegar hús, íbúðir, sumarbústaðir eða aðrar sambærilegar einingar sem leigðar eru út í heilu lagi þarf ekki að skrá fjölda gistirýma, aðeins fjölda húsa.

Tjaldsvæði

Gera þarf grein fyrir áætluðum hámarksfjölda tjaldstæða eða gistináttaeininga á tjaldsvæði. Stæði undir tjaldvagna, fellihýsi og húsbíla falla hér undir. Ef fjöldi tjaldstæða liggur ekki fyrir skal færa hér fjölda tjalda sem mest hefur verið á tjaldstæðinu í einu.

Svefnpokapláss

Í tilviki skála, farfuglaheimila og annarra staða sem bjóða gistingu í stökum rúmum og svefnpokaplássum skal færa heildarfjölda rúma og svefnpokaplássa sem eru til útleigu.

Tilgreina skal heildarfjölda annarra gistirýma en húsa, herbergja, tjaldstæða, rúma og svefnpokaplássa. Jafnframt skal tilgreina hvers eðlis þau eru.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Almennt um gistináttaskatt - Lög nr. 87/2011 um gistináttaskatt

Fjárhæð gistináttaskatts – 2. mgr. 2. gr. laga nr. 87/2011, um gistináttaskatt

Virðisaukaskattur á gistingu – 2. tölul. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt

Flokkar rekstrarleyfa gististaða – 3. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum