Jöfnunargjald alþjónustu

Jöfnunargjald er lagt á fjarskiptafyrirtæki sem starfrækja fjarskiptanet eða þjónustu. Gjaldið rennur í jöfnunarsjóð í vörslu Póst- og fjarskiptastofnunar og á að nota til að standa straum af fjárframlögum samkvæmt lögum um fjarskipti.

Athugið! Jöfnunargjald var lagt á í síðasta skipti við álagninguna árið 2023 á veltuna af fjarskiptastarfsemi í janúar til og með ágúst 2022!

Gjaldstofn

Gjaldstofn jöfnunargjalds er bókfærð velta, þ.e. rekstrartekjur sem fyrirtæki hefur af gjaldskyldri starfsemi hér á landi. 

Gjaldstig

Gjaldstig jöfnunargjalds er 0,10% frá og með tekjuárinu 2009.

Uppgjör

Gjaldið er lagt á við álagningu opinberra gjalda, en skila á gjaldstofni til jöfnunargjalds alþjónustu á forsíðu skattframtals RSK 1.04 viðkomandi árs.

Frádráttarbærni

Jöfnunargjald má draga frá tekjum greiðanda á því rekstrarári þegar stofn þess myndaðist.

Ítarefni

Hvar finn ég reglunar?

Almennt um jöfnunargjald - 66. gr. laga nr. 70/2022, um fjarskipti

Eyðublöð

Framtal vegna jöfnunargjalds alþjónustu - RSK 1.04


Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum