Umhverfis- og auðlindaskattar

Umhverfis- og auðlindaskattar skiptast annars vegar í kolefnisgjald á fljótandi jarðefnaeldsneyti og hins vegar í skatt af raforku og heitu vatni.

Kolefnisgjald

Greitt er í ríkissjóð kolefnisgjald af fljótandi jarðefnaeldsneyti.  Með fljótandi jarðefnaeldsneyti er átt við gas- og díselolíu, bensín, flugvéla- og þotueldsneyti og brennsluolíu.  

Gjaldskyldir eru allir sem flytja inn til landsins vöru sem er gjaldskyld, hvort sem er til endursölu eða eigin nota.   Allir þeir sem framleiða hér á landi vöru sem er gjaldskyld, vinna að framleiðslu hennar eða setja saman, hvort sem er til endursölu eða eigin nota, eru gjaldskyldir.

Gjaldskyldum aðilum bera að standa skil á kolefnisgjaldi við tollafgreiðslu ef um innflutning er að ræða en við afhendingu í tilviki innlendrar framleiðslu eða aðvinnslu.

Tollstjóri annast álagningu og eftirlit með kolefnisgjaldi.

Skattur af heitu vatni

Greiddur er í ríkissjóð sérstakur skattur af seldu heitu vatni.  Skattskyldan nær til allra þeirra aðila sem selja heitt vatn á síðasta stigi viðskipta, þ.e. sölu til notenda.  Notandi telst sá sem endurselur ekki heitt vatn.  Undanþegnir skattskyldu eru þeir sem selja heitt vatn fyrir minna en 500.000 kr. á ári.  

Ríkisskattstjóri annast álagningu skatts af heitu vatni.

Til skattskyldrar sölu eða afhendingar telst ekki heitt vatn sem selt er öðrum skattskyldum aðila eða heitt vatn sem er afhent eða notað eingöngu til framleiðslu á heitu vatni til endursölu.

Sölureikningar

Skattskyldir aðilar skulu við sölu eða afhendingu á heitu vatni gefa út sölureikning þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram:  Útgáfudagur og útgáfustaður, afhendingarstaður ef annar en útgáfustaður.  Nafn og kennitala seljenda.  Nafn og kennitala  kaupanda.  Magn, einingarverð og heildarverð á heitu vatni.  Auk þess skal á sölureikningi koma fram hvort skattur af heitu vatni sé lagður á og hver fjárhæð hans er.  

Gjalddagi, uppgjör og uppgjörstímabil

Skattskyldir aðilar skulu greiða skatt af heitu vatni fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við sölu.  Við uppgjör skatts af heitu vatni má draga frá fjárhæð sem nemur sannarlega útistandandi töpuðum kröfum eða ofgreiddum skatti sem áður hefur verið skilað í ríkissjóð.

Uppgjörstímabil skatts af heitu vatni er tveir mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, júlí og ágúst, september og október, nóvember og desember. Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar skila innheimtumanni ríkissjóðs (ríkisskattstjóri og sýslumenn utan höfuðborgarsvæðisins) skýrslu yfir magn gjaldskyldrar heits vatns á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins.

Álagning, bókhald og eftirlit

Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, um álagningu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd varðandi skatt af heitu vatni, skv. II. kafla laganna, skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga um virðisaukaskatt.

Skattur, sem lagður er á samkvæmt lögum um umhverfis- og auðlindaskatta, myndar gjaldstofn til virðisaukaskatts.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Almennt um umhverfis- og auðlindaskatta - lög nr. 129/2009, um umhverfis- og auðlindaskatta

Álagning, bókhald og eftirlit - lög nr. 50/1988, um virðisaukaskatt

Eyðublöð

Tilkynning um skattskyldu vegna sölu á raforku og heitu vatni - RSK 10.50

Skattur á sölu á heitu vatni - RSK 10.51

Einu sinni var...

Lög um umhverfis- og auðlindaskatta var strax í upphafi markaður ákveðinn líftími. Samkvæmt gildistökuákvæði laganna öðluðust lögin gildi 1. janúar 2010, en skyldu falla úr gildi 31. desember 2012.

Með lögum nr. 146/2012 var sú breyting gerð að gildistökuákvæðið var fellt brott og lögin gerð varanleg, þó þannig að skattur á raforku var áfram tímabundinn, en skyldi nú falla úr gildi 31. desember 2015. Breytingin á lögunum fólst í því að það ákvæði sem kvað á um fjárhæð skatts á seldri raforku var fellt brott. Ekki var gerð breyting á öðrum ákvæðum laganna og því enn fjallað um skatt á raforku og heitt vatn þótt nú sé ekki lengur lagður skattur á sölu á rafmagni.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum