Staðgreiðsla 2009

Skatthlutfall í staðgreiðslu

Skatthlutfall í staðgreiðslu er 37,2%. Skatthlutfall barna, þ.e. þeirra sem fædd eru 1994 eða síðar, er 6% af tekjum umfram frítekjumark barna sem er kr. 100.745

Persónuafsláttur

Persónuafsláttur er kr. 506.466 á ári, eða kr. 42.205 á mánuði.
Heimilt er að nýta allan (100%) ónýttan persónuafslátt maka á árinu 2009.


Einn mánuður kr. 42.205
Hálfur mánuður kr. 21.103
Fjórtán dagar kr. 19.426
Ein vika kr. 9.713

Ef launatímabil er annað en að ofan greinir skal ákvarða persónuafslátt þannig:
506.466 / 365 x dagafjöldi launatímabils

Sjá nánar um persónuafslátt

Hér er að finna reiknivél en skrá þarf launafjárhæð, iðgjald í lífeyrissjóð og hlutfall persónuafsláttar sem það skattkort sýnir sem nýtt er hjá launagreiðanda.

Sjómannaafsláttur

Sjómannaafsláttur á árinu 2009 er kr. 987 á dag. 

Frádráttarbært iðgjald í lífeyrissjóð

Lífeyrisiðgjald sem halda má utan staðgreiðslu er 4% af launum eða reiknuðu endurgjaldi. Heimilt er að auki að færa til frádráttar allt að 4% vegna iðgjalda samkvæmt samningi um viðbótartryggingavernd, enda séu iðgjöld greidd reglulega til aðila sem falla undir 3. mgr. 8. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða.

Tryggingagjald er 5,34% fyrri helming ársins og 7% seinni helming ársins.

Sérstök trygging bætist við vegna launa sjómanna á fiskiskipum.

Sundurliðun:

1.1-30.6 1.7-31.12
- Almennt tryggingagjald 4,54% 4,54%
- Atvinnutryggingagjald 0,65% 2,21%
- Gjald í Ábyrgðasjóð launa v/gjaldþrota 0,10% 0,20%
- Markaðsgjald 0,05% 0,05%
Samtals til staðgreiðslu 5,34% 7,00%

- Viðbót vegna launa sjómanna

0,65%

0,65%
Samtals af launum sjómanna 5,99% 7,65%

Orðsendingar

Orðsendingar um skatthlutfall og skattmat í staðgreiðslu eru gefnar út í byrjun janúar en þar koma fram ítarlegar upplýsingar um þessi atriði. Grunnupplýsingar um staðgreiðslu er að finna í orðsendingu nr. 1 á hverju ári.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum