Barnabótaauki

Barnabótaauki 2022

Barnabótaauki að fjárhæð 20.000 með hverju barni var greiddur þann 1. júlí 2022 til þeirra sem fengu ákvarðaðar barnabætur við álagningu einstaklinga 2022. Fjárhæðin skiptist jafnt milli hjóna og sambúðarfólks.

Sérstökum barnabótaauka verður ekki skuldajafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga

Nánari upplýsingar um barnabætur

Barnabótaauki 2021

Við álagningu 2021 var greiddur sérstakur barnabótaauki vegna afleiðinga heimsfaraldurs kórónuveiru.

Greiddar voru 30.000 kr. með hverju barni í þeim tilvikum þar sem ákvarðaðar höfðu verið tekjutengdar barnabætur til framfærenda.

Fjárhæð barnabótaauka skiptist jafnt milli hjóna og sambúðarfólks.

Framfærandi

Sérstakur barnabótaauki var greiddur til þeirra sem töldust framfærendur barna samkvæmt skilgreiningu í A-lið 68. gr. tekjuskattslaga. Við ákvörðun þess hver telst framfærandi barns er fyrst og fremst litið til þess hjá hverjum barnið er skráð til heimilis í árslok samkvæmt Þjóðskrá og skiptir ekki máli þótt barnið hafi ekki verið á framfæri hans allt árið. Sá sem greiðir meðlag með barni telst ekki framfærandi í þessu sambandi.

Lesa um almennar barnabætur

Skerðingar og skuldajöfnun

Sérstakur barnabótaauki telst ekki til skattskyldra tekna og skerðir ekki aðrar greiðslur. Honum verður ekki skuldajafnað á móti opinberum gjöldum til ríkissjóðs, opinberum gjöldum til sveitarfélaga og vangreiddum meðlögum til Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

Barnabótaauki 2020

Sérstakur barnabótaauki var greiddur út við álagningu opinberra gjalda einstaklinga í lok maí 2020 til allra framfærenda barna. Ekki þarf að sækja um sérstakan barnabótaauka heldur verður hann liður í heildarniðurstöðu álagningar.

Fjárhæðir 2020

Fjárhæð barnabótaauka tekur mið af því hvort framfærandi fái greiddar tekjutengdar barnabætur samkvæmt niðurstöðu álagningarinnar eða hvort barnabætur framfæranda séu skertar að fullu vegna tekna.

Fjárhæð Skilyrði
42.000 kr. með hverju barni Til þeirra sem fá greiddar tekjutengdar barnabætur
30.000 kr. með hverju barni Til þeirra sem ekki fá greiddar barnabætur vegna tekjuskerðingar

Fjárhæð barnabótaauka skiptist jafnt milli hjóna og sambúðarfólks.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Framfærandi fyrir barnabætur - A-liður 68. gr. tekjuskattslaga

Um barnabótaauka - Bráðabirgðaákvæði LXIII við 68. gr. tekjuskattslaga

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum