„Allir vinna“ - Tímabundin hækkun á endurgreiðslum VSK

Meðal þeirra ráðstafana sem gripið var til í því skyni að bregðast við efnahagsástandinu af völdum kórónuveirunnar var tímabundin hækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts, úr 60% í 100%.

Endurgreiðslan er af vinnu manna við íbúðarhúsnæði sem veitt er á tímabilinu 1. mars 2020 til og með 31. ágúst 2022. Heimild til endurgreiðslu var jafnframt víðtækari á tímabili og tók m.a. til frístundahúsnæðis, mannvirkja í eigu tiltekinna félagasamtaka og bílaviðgerða.  

Tímabundin hækkun og útvíkkun úrræðis fellur niður

Endurgreiðsluhlutfall vegna viðhalds, endurbóta og byggingar íbúðarhúsnæðis lækkaði aftur niður í 60% frá og með 1.9.2022.

Endurgreiðsla vegna bílaviðgerða féll niður frá og með 1.1.2022

Endurgreiðsla vegna frístundahúsnæðis, heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis féll niður frá og með 1.7.2022.

Opið fyrir umsóknir

Sótt er um endurgreiðslur á þjónustusíðu hvers umsækjanda á þjónustuvef Skattsins. Umsókn er að finna undir flipanum „Samskipti“, „Umsóknir“ og þar „Virðisaukaskattur“.

Opna umsókn Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar vinnu verktaka við endurbætur eða viðhald á íbúðarhúsnæði til eigin nota.
Opna umsókn Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar vinnu verktaka við nýbyggingu á íbúðarhúsnæði til eigin nota.
Opna umsókn Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna bifreiðar (gildir aðeins fyrir viðgerðir á tímabilinu 1.3.2020 - 31.12.2021).

Í hinum nýju lögum felst nánar tiltekið að endurgreiddur verður 100% virðisaukaskattur sem greiddur hefur verið af vinnu manna sem innt er af hendi innan tímabilsins frá og með 1. mars 2020 til og með 31. ágúst 2022 af eftirfarandi: 

  • Endurgreiðslur virðisaukaskatts gildir bara um bílaviðgerðir til og með 31.12.2021
  • Endurgreiðsla vegna frístundahúsnæðis, hönnunar og eftirlits, heimilisaðstoðar og reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis gildir til og með 30.6.2022.

Frístundahúsnæði

Vinnu manna á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endurbætur íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis. Með frístundahúsnæði er átt við húsnæði eins og það er skilgreint í lögum nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóða undir frístundahús, og að húsnæðið sé skráð sem frístundahús í fasteignaskrá Þjóðskrár Íslands.

Fellur niður frá og með 1. júlí 2022.

Hönnun og eftirlit

Þjónustu vegna hönnunar og eftirlits með byggingu, viðhaldi og endurbótum á íbúðarhúsnæði og frístundahúsnæði.

Fellur niður frá og með 1. júlí 2022.

Heimilisaðstoð og regluleg umhirða íbúðarhúsnæðis

Vinnu manna vegna heimilisaðstoðar eða reglulegrar umhirðu íbúðarhúsnæðis. Endurgreiðsla vegna þessa tekur jafnt til eigenda sem leigjenda íbúðarhúsnæðis.

Fellur niður frá og með 1. júlí 2022.

Bílaviðgerðir

Vinnu manna vegna bílaviðgerðar, bílamálningar og bílaréttinga fólksbifreiða. Rétt til endurgreiðslu vegna þessa eiga einstaklingar utan rekstrar og skilyrði fyrir endurgreiðslu eru þau að fólksbifreið sé í eigu umsækjenda og að fjárhæð vinnuliðar sé að lágmarki 25.000 kr. án virðisaukaskatts.

Fellur niður frá og með 1. janúar 2022.

Mannvirki félagasamtaka

Vinnu manna á byggingarstað við byggingu, viðhald eða endurbætur á mannvirkjum sem alfarið eru í eigu mannúðar- og líknarfélaga, íþróttafélaga, landssamtaka björgunarsveita og slysavarnardeilda og einstaka félagseininga sem starfa undir merkjum samtakanna. Einnig er endurgreiddur virðisaukaskattur af þjónustu vegna hönnunar eða eftirlits með byggingu á slíku mannvirki. Endurgreiðsla þessi er bundin tilteknum skilyrðum sem koma nánar fram í lögunum.

Fellur niður frá og með 1. janúar 2022.

Forsendur

Endurgreiðsla virðisaukaskatts samkvæmt þessu tekur ekki til virðisaukaskatts sem heimilt er að færa til innskatts í skattskyldum rekstri, sbr. VII. kafla laga um virðisaukaskatt. Þá er það einnig skilyrði fyrir endurgreiðslu að seljandi þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskiptin eiga sér stað. 

Afgreiðslutími umsókna

Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar vinnu verktaka við endurbætur eða viðhald á íbúðarhúsnæði til eigin nota skal afgreidd eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar en 30 dögum eftir að fullnægjandi erindi berst.

Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna aðkeyptrar vinnu verktaka við nýbyggingu á íbúðarhúsnæði til eigin nota skal afgreidd á grundvelli framlagðra reikninga, eigi sjaldnar en á tveggja mánaða fresti. Beiðnir sem berast í janúar og febrúar eru afgreiddar 5. apríl, umsóknir í mars og apríl afgreiddar 5. júní o.s.frv.

Beiðni um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna bifreiðar skal afgreidd eins fljótt og auðið er, þó aldrei síðar en 90 dögum eftir að fullnægjandi erindi berst.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum