Útvarpsgjald

Útvarpsgjald er lagt er á einstaklinga og lögaðila samhliða álagningu opinberra gjalda.

Einstaklingar

Útvarpsgjaldið er lagt á einstaklinga sem eru 16 ára til og með 69 ára á tekjuárinu, sem eru með tekjustofn yfir tekjumörkum, í fyrsta skipti við álagningu ári eftir að 16 ára aldri er náð. Undanþegnir greiðslu útvarpsgjalds eru elli- og örorkulífeyrisþegar sem dvelja á dvalar- og hjúkrunarheimilum og þeir sem eru 70 ára og eldri í lok tekjuársins. Þannig eru þeir sem verða 70 ára á árinu 2023 undanþegnir greiðslu útvarpsgjalds við álagningu 2024.

Tekjustofn er tekjuskattsstofn að viðbættum fjármagnstekjuskattsstofni. Hjá hjónum og samsköttuðu fólki bætist þó einungis helmingur sameiginlegs fjármagnstekjuskattsstofns við tekjustofn hjá hvoru fyrir sig.

Tekjumörk vegna útvarpsgjalds einstaklinga eru reiknuð skattleysismörk fyrir hvert ár.

Lögaðilar

Gjaldskylda hvílir á innlendum lögaðilum. Undanþegnir greiðslu eru dánarbú, þrotabú og lögaðilar sem sérstaklega eru undanþegnir skattskyldu samkvæmt lögum um tekjuskatt.

Fjárhæð útvarpsgjalds

Fjárhæðin er sú sama hjá lögaðilum og einstaklingum.

Gjaldár
Útvarpsgjald
- fjárhæð
 Tekjumörk
einstaklinga
2024 20.900  2.276.569 
2023 20.200  2.057.211 
2022 18.800  1.938.025 
2021 18.300  1.870.828 
2020 17.900  1.833.671 
 2019 17.500   1.750.783
2018 17.100  1.718.678
 2017 16.800 1.678.001
 2016 16.400 1.637.600
 2015 17.800 1.624.603
 2014 19.400
 1.559.003
 2013 18.800
 1.495.407
 2012 18.800
 1.421.780
 2011 17.900
 1.425.218
 2010 17.200
 1.361.468
 2009 17.200
 1.143.362

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Einstaklingar undanþegnir greiðslu útvarpsgjalds – 2. mgr. 10. gr. laga nr. 125/1999, um málefni aldraðra, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.

Gjaldskyldir lögaðilar – 2. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 23/2013 , um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.

Lögaðilar undanþegnir greiðslu útvarpsgjalds – 1. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu. og 4. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Útvarpsgjald – 1. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum