Fyrirframgreiðsla vaxtabóta

Endanleg ákvörðun á vaxtabótum fer fram við álagningu að tekjuári liðnu. Þeir sem festa kaup á íbúðarhúsnæði til eigin nota á tekjuárinu geta sótt um að fá greiddar ársfjórðungslega fyrirfram áætlaðar vaxtabætur.

Fyrirframgreiðslan er reiknuð eftir sömu reglum og gilda um útreikning vaxtabóta í álagningu, nema hvað miðað er við ársfjórðung í staðinn fyrir heilt ár. Hámark vaxtabóta, í hverjum ársfjórðungi, er fjórðungur af hámarks vaxtabótum fyrir heilt ár. Miðað er við gjaldfallna og greidda vexti í hverjum ársfjórðungi, en þó ekki hærri fjárhæð en sem nemur fjórðungi hámarks vaxtagjalda miðað við heilt ár. Skerðing vegna tekna er miðuð við fjórðung launatekna umsækjanda á síðustu 12 mánuðum samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra og upplýsingar um tekjur utan staðgreiðslu og eignir samkvæmt síðasta skattframtali.

Hvenær er greitt?

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er greidd ársfjórðungslega, fjórum mánuðum eftir lok hvers ársfjórðungs.

  •  Vaxtabætur fyrir 1. ársfjórðung (jan., feb., mars,) eru greiddar 1. júlí
  •  Vaxtabætur fyrir 2. ársfjórðung (apríl., maí, júní,) eru greiddar 1. október
  •  Vaxtabætur fyrir 3. ársfjórðung (júlí, ágúst, sept.,) eru greiddar 1. febrúar
  •  Vaxtabætur fyrir 4. ársfjórðung (okt., nóv., des.) eru greiddar 1. maí

Unnt er að óska eftir endurupptöku á ákvörðun fyrirframgreiðslunnar hjá ríkisskattstjóra innan þriggja mánaða frá því að tilkynnt var um ákvörðun. Réttur til að fá mál tekið upp að nýju er bundið eftirfarandi skilyrðum:

  • Að ákvörðun hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik.
  • Að ákvörðun hafi byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Umsókn um fyrirframgreiðslu vaxtabóta

Sækja skal um fyrirframgreiðslu vaxtabóta til ríkisskattstjóra (RSK 3.14).

Þegar kaup hafa átt sér stað eða bygging er hafin er hægt að sækja um fyrirframgreiðslu vegna þeirra lána sem stofnað hefur verið til vegna kaupanna. Sótt er um í eitt skipti og eftir það ákvarðast fyrirframgreiðslan sjálfkrafa á grundvelli þeirrar umsóknar. Einungis þarf að senda nýja umsókn ef stofnað er til nýrra lána.

Frestur til að sækja um fyrirframgreiðslu vaxtabóta er í einn mánuð eftir að ársfjórðungi lýkur.

  • Vegna 1. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 30. apríl
  • Vegna 2. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. júlí
  • Vegna 3. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. október
  • Vegna 4. ársfjórðungs er umsóknarfrestur til 31. janúar

Umsóknum er skilað til ríkisskattstjóra. Berist umsókn síðar er hún afgreidd með umsóknum næsta ársfjórðungs.

Nauðsynleg gögn og upplýsingar

Við útfyllingu umsóknar er nauðsynlegt að allar upplýsingar séu við höndina. Ófullnægjandi útfylling getur þýtt tafir á úthlutun fyrirframgreiðslu. Eftirfarandi þarf að hafa í huga:

  • Upplýsingar um skuldareiganda (lánveitanda) þurfa að vera skýrar. Greina þarf frá bankanúmeri, númeri höfuðbókar og númeri láns. Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar fyrir lánastofnunina og séu þær ekki rétt útfylltar getur ríkisskattstjóri ekki sótt upplýsingar til þeirra. Í flestum tilvikum koma þessar upplýsingar fram á greiðslukvittunum.
  • Þegar um ný lán er að ræða þurfa að koma fram upplýsingar um það hvenær lánið var tekið (fyrsta vaxtadag), fjárhæð lánsins og fyrsta gjalddaga.
  • Jafnframt þarf að gefa upplýsingar um lántökukostnað, þinglýsingar- og stimpilgjöld, afföll eða yfirverð. Þessar upplýsingar verða ekki sóttar til lánastofnana og verður því umsækjandi að gera grein fyrir þeim á eyðublaðinu.
  • Ef um yfirtekin lán er að ræða þarf að koma fram hvenær lánið var upphaflega tekið, upplýsingar um eftirstöðvar lánsins á yfirtökudegi, bæði með og án vísitölu, og fyrsta gjalddaga eftir yfirtöku. Fyrirframgreiðsla reiknast ekki fyrr en viðkomandi lánastofnun hefur verið tilkynnt um yfirtökuna.

Gögn sem fylgja skulu umsókn

Nauðsynlegt er að eftirfarandi gögn fylgi með umsókninni:

  • Ljósrit af kaupsamningi.
  • Ljósrit af skuldabréfi.
  • Kvittanir þar sem fram koma lántökugjald, þinglýsingarkostnaður og stimpilgjöld af lánum.
  • Kvittanir vegna síðustu greiðslu af yfirteknum lánum ásamt ljósriti af vaxtauppgjöri milli kaupanda og seljanda.
  • Þeir sem kaupa búseturétt þurfa að skila staðfestingu á kaupunum.
  • Ef um byggingu á íbúðarhúsnæði er að ræða þarf að leggja fram ljósrit af staðfestingu á greiðslu gatnagerðargjalda, ljósrit af verksamningi eða önnur gögn sem staðfesta hvenær bygging var hafin.

Lán sem veita rétt til fyrirframgreiðslu

Þau lán sem veita rétt til fyrirframgreiðslu eru fasteignaveðlán sem tekin eru til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Það á jafnt við um ný lán og yfirtekin lán.

Fyrirframgreiðsla reiknast frá þeim mánuði þegar greitt er af láni í fyrsta skipti. Þegar stofnað er til nýrra lána kemur strax til greiðslu lántökukostnaðar og reiknast fyrirframgreiðslan þá frá því að lánið er afgreitt. Fyrirframgreiðsla vegna yfirtekinna lána reiknast frá þeim tíma sem greitt er af láninu eftir að viðkomandi lánastofnun hefur verið tilkynnt um yfirtökuna. Því er nauðsynlegt að tilkynna yfirtöku láns strax til að koma í veg fyrir tafir á greiðslu.

Upplýsingar sóttar til lánastofnana

Einungis lán sem lánastofnanir veita skattyfirvöldum upplýsingar um, veita rétt til fyrirframgreiðslu vaxtabóta. Þegar fyrir liggur undirrituð umsókn um fyrirframgreiðslu vaxtabóta, sækir ríkisskattstjóri þær upplýsingar til lánastofnana sem nauðsynlegar eru til að ákvarða fyrirframgreiðsluna.

Uppgjör og álagning

Fyrirframgreiðsla vaxtabóta er bráðabirgðagreiðsla. Í fyrirframgreiðslu er einungis tekið tillit til vaxtagjalda af fasteignaveðlánum og einungis tekið mið af greiddum vaxtagjöldum sem gjaldféllu á viðeigandi ársfjórðungi. Sama á við um önnur lán sem tekin hafa verið til öflunar íbúðarhúsnæðis en þau sem veittu rétt til fyrirframgreiðslu, þau koma til útreiknings vaxtabóta í uppgjöri samkvæmt framtali. Við álagningu samkvæmt skattframtali eru vaxtabætur reiknaðar og gerðar upp ef um of- eða vangreiðslu hefur verið að ræða.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Almennt um vaxtabætur – B-liður 68. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Almennt um vaxtabætur – reglugerð nr. 990/2001, um greiðslu vaxtabóta

Búseturéttur - lög nr. 66/2003, um húsnæðissamvinnufélög

Heimild til að fá mál endurupptekið – 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993

Kaupleiguíbúðir sem veita rétt til vaxtabóta - 76. gr. laga nr. 97/1993, um Húsnæðisstofnun ríkisins

Eyðublöð

Umsókn um fyrirframgreiðslu vaxtabóta – RSK 3.14

Annað

Vaxtabætur

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum