Óbeinir skattar

Ákvarðandi bréf nr. 1006/2002

14.5.2002

Virðisaukaskattur - grunnfjárhæðir

14. maí 2002
G-Ákv. 02-1006

Í bréfi ríkisskattstjóra, dags. 19. desember 2001 (tilv. G-ákv 996/01), voru veittar upplýsingar um framreiknaðar grunnfjárhæðir virðisaukaskatts frá 1. janúar 2002 samkvæmt nánar tilteknum reglugerðarákvæðum. Í bréfinu láðist að tilgreina framreiknaða grunnfjárhæð samkvæmt 3. mgr. 2. gr. reglna nr. 165/2001, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til Norræna fjárfestingarbankans. Með bréfi þessu er bætt úr því.

3. mgr. 2. gr. reglna nr. 165/2001 kr. 16.000

Ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum