Ákvarðandi bréf nr. 914/1999
Virðisaukaskattur - aðgangseyrir að sýningu um sögu og örlög Titanic.
5. júlí 1999
G-Ákv. 99-914
Vísað er til bréfs yðar, sem dagsett er 23. júní 1999 en barst embætti ríkisskattstjóra 2. júlí sl., þar sem leitað er álits embættisins á því hvort aðgangseyrir að fyrirhugaðri sýningu um sögu og örlög skipsins Titanic sé undanþeginn virðisaukaskatti.
Í bréfinu er frá því greint að sýningin verði sett upp í Hafnarfirði í samvinnu við Ulster Folk & Transport Museum á Norður Írlandi, Hafnarfjarðarbæ (menningar og ferðamálafulltrúa) og Slysavarnarfélag Íslands. Saga skipsins verði rakin í máli og myndum. Sýndir verði m.a. munir sem tengjast skipinu, búningar og skartgripir sem notaðir voru í kvikmynd um skipið (Titanic - love story) og sýndar stækkaðar myndir af síðum íslenskra blaða þar sem fjallað er um skipsskaðann. Þá verði sýndar myndir úr undirdjúpum af skipsflakinu og sýningargestum gefinn kostur á að skoða umhverfi þess með hjálp tölvuforrita.
Í 4. tl. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt með síðari breytingum, er kveðið á um að undanþegin virðisaukaskatti sé starfsemi safna, svo sem bókasafna, listasafna og náttúrugripasafna, og hliðstæð menningarstarfsemi. Í skattframkvæmd hefur verið litið svo á að starfsemi minjasafna falli undir safnastarfsemi í skilningi ákvæðisins og styðst sú framkvæmd við athugasemdir með frumvarpi því er varða að lögum nr. 50/1988. Það er álit ríkisskattstjóra að sú sýning sem hér um ræðir sé menningarstarfsemi hliðstæð við rekstur minjasafns og falli því utan skattskyldusviðs virðisaukaskatts. Í því felst að ekki ber að innheimta virðisaukaskatt af aðgangseyri að sýningunni, hins vegar skal sýningarhaldari bera allan virðisaukaskatt af aðföngum varðandi sýninguna.
Ríkisskattstjóri