Óbeinir skattar

Ákvarðandi bréf nr. 902/1999

15.1.1999

Virðisaukaskattur- álag – greiðsla í gegnum heimabanka

15. janúar 1999
G-Ákv. 99-902

Í tilefni af fjölda kæra vegna álags í þeim tilvikum sem gjaldandi hefur greitt virðisaukaskatt í gegnum heimabanka vill ríkisskattstjóri koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri: 

  • Um álag í virðisaukaskatti gilda ákvæði 27. gr. nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
  • Um hvað teljist fullnægjandi skil á virðisaukaskatti er fjallað í 9. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti. Í 1. tölul. 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að það teljist fullnægjandi skil á virðisaukaskatti ef greitt er í banka, sparisjóði eða pósthúsi í síðasta lagi á gjalddaga.

Að áliti ríkisskattstjóra eru skil fullnægjandi ef greitt er í heimabanka enda séu önnur skilyrði ákvæðisins uppfyllt. Samkvæmt upplýsingum frá bönkum, S og R eru færslur sem berast eftir kl. 21 bókaðar á næsta bankadag.

Samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 667/1995, um framtal og skil á virðisaukaskatti, þá ber að skila virðisaukaskatti ásamt virðisaukaskattsskýrslu eigi síðar en á gjalddaga. Það er álit ríkisskattstjóra að hafi skýrsla ekki borist skattstjóra, innheimtumanni, banka, sparisjóði eða pósthúsi á gjalddaga séu skil ekki fullnægjandi.

Með vísan til framanritaðs eru það fullnægjandi skil ef gjaldandi færir greiðsluna í gegnum heimabanka sinn í síðasta lagi kl. 21. á gjalddaga virðisaukaskatts enda hafi hann séð til þess að fullnægjandi virðisaukaskattsskýrsla berist í síðasta lagi á gjalddaga til þar til bærra aðila.

 Ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum