Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2015

24.7.2015

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2015, sem og ákvörðun vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og http://www.skattur.is

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 24. júlí til 7. ágúst 2015 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur mánudaginn 24. ágúst 2015.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. ofangreindra laga.

Sérstök athygli er vakin á því að sá hluti barna– og vaxtabóta ásamt öðrum inneignum samkvæmt álagningar- og innheimtuseðli 2015, sem greiða skal út að lokinni álagningu, verður greiddur á gjalddaga, sem er 1. ágúst n.k. Innheimta eftirstöðva opinberra gjalda hefst á sama gjalddaga.

Reykjavík 24. júlí 2015

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum