Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra um álagningu opinberra gjalda á einstaklinga árið 2018

31.5.2018

Álagningu opinberra gjalda á árinu 2018, sem og ákvörðun vaxta- og barnabóta, er lokið vegna þeirra einstaklinga, sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningar- og innheimtuseðlar eru aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra; www.rsk.is og www.skattur.is

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á gjaldendur í hverju sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum fyrir hvert sveitarfélag dagana 31. maí til 14. júní 2018 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 31. ágúst 2018.

Auglýsing þessi er birt, skv. 98. gr. ofangreindra laga.

 

Reykjavík 31. maí 2018

Ingvar J Rögnvaldsson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum