Auglýsingar

Auglýsing ríkisskattstjóra nr. 3/2012

31.10.2012

Um álagningu opinberra gjalda á lögaðila 2012.

Álagningu tekjuskatts er lokið á lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla, sbr. og 4. mgr. 71. gr., sem og álagningu annarra opinberra gjalda lögaðila sem lögð skulu á vegna tekjuársins 2011 skv. VIII.-XIV. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt.

Álagningarseðlar eru nú aðgengilegir á þjónustuvef ríkisskattstjóra á www.rsk.is og www.skattur.is.

Álagningarskrár, sem sýna álagða skatta á lögaðila í viðkomandi sveitarfélagi, liggja frammi á starfsstöðvum ríkisskattstjóra eða sérstaklega auglýstum stöðum dagana 31. október til 14. nóvember 2012 að báðum dögum meðtöldum.

Kærufresti vegna álagningar þeirra skatta og gjalda, sem álagning þessi tekur til, lýkur föstudaginn 30. nóvember 2012.

Auglýsing þessi er birt, sbr. 98. gr. framangreindra laga.

31. október 2012

Skúli Eggert Þórðarson
ríkisskattstjóri

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum